Málsnúmer 2606013

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn - 313. fundur - 11.06.2026

Kosið var samhljóða í eftirtaldar nefndir, stjórnir og ráð:

1. Almannavarnanefnd

Samkvæmt samkomulagi um skipan sameiginlegrar almannavarnanefndar og aðgerðarstjórnar sveitarfélaganna á Vesturlandi og lögreglustjórans á Vesturlandi er bæjarstjóri aðalmaður í nefndinni.

Varamaður: Fannar Þór Þorfinnsson.

2. Stjórn Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga

Grundarfjarðarbær tilnefnir eftirtalda sem aðalmann og varamann í stjórn byggðasamlags um félags- og skólaþjónustu Snæfellinga frá og með næsta aukafundi í byggðasamlaginu.

Aðalmaður: Bæjarstjóri.

Varamaður: Fannar Þór Þorfinnsson.

3. Félagsmálanefnd Snæfellinga

Lagt hefur verið til að sameiginleg velferðarnefnd sveitarfélaganna á Snæfellsnesi verði skipuð, en að sameiginleg félagsmálanefnd verði aflögð. Kjöri fulltrúa frestað.

4. Heilbrigðisnefnd Vesturlands

Skipuð sameiginlega af sveitarfélögum á Vesturlandi.

5. Breiðafjarðarnefnd

Fulltrúi tilnefndur sameiginlega af sveitarfélögum sem liggja að Breiðafirði. Skipað var í nefndina árið 2025 til fjögurra ára.

6. Skólanefnd Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Fulltrúi tilnefndur sameiginlega af sveitarfélögum sem aðild eiga að skólanum.
Tekið fyrir undir lið nr. 19 á fundinum.

7. Stjórn Jeratúns ehf.

Grundarfjarðarbær tilnefnir eftirtalda sem aðalmann og varamann í stjórn Jeratúns ehf. frá og með næsta hluthafafundi félagsins.

Aðalmaður: Bæjarstjóri

Varamaður: Fannar Þór Þorfinnsson.

8. Fulltrúi á landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga

Aðalmaður: Fannar Þór Þorfinnsson.

Varamaður: Aðalsteinn Jósepsson.

9. Fulltrúar á aðalfund Byggðasamlags Snæfellinga

Fulltrúar á aðalfund Byggðasamlags Snæfellinga kjörtímabilið 2026-2030 eru allir aðalmenn í bæjarstjórn.

10. Fulltrúar á aðalfund Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV)

Samkvæmt lögum SSV ber að kjósa fulltrúa til eins árs í senn og er kjörtímabil frá 1. júlí ár hvert. Í ár, á kosningaári, er þó haldinn aukaaðalfundur þann 1. júlí nk.

Fyrir komandi kjörtímabil, frá og með deginum í dag og til 30. júní 2027, voru kosin:

Aðalmenn:
B - Fannar Þór Þorfinnsson
D - Ágústa Einarsdóttir
B - Aðalsteinn Jósepsson

Varamenn:
B - Signý Gunnarsdóttir
D - Bjarni Sigurbjörnsson
B - Þuríður Gía Jóhannesdóttir

Samþykkt samhljóða.