Fyrir liggur ósk fráfarandi bæjarstjóra, Bjargar Ágústsdóttur, um lausn frá setu og formennsku í stjórn Svæðisgarðsins Snæfellsness ses.
Stjórn Svæðisgarðsins Snæfellsness ses. er skipuð á fulltrúaráðsfundum Svæðisgarðsins. Björg hefur setið í stjórn og verið formaður sl. átta ár. Fulltrúaráðsfundir eru haldnir síðla árs. Ósk Bjargar er að losna frá skyldum stjórnarmanns/formanns hið fyrsta, þ.e. sem fyrst eftir starfslok sem bæjarstjóri, en að það bíði ekki næsta fulltrúaráðsfundar.