-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 280
Erindisbréf nefndarinnar kynnt fyrir fundarmönnum.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að formaður nefndarinnar verði Þuríður Gía Jóhannesdóttir og að varaformaður nefndarinnar verði Signý Gunnarsdóttir. Jafnframt var samþykkt að skipulagsfulltrúi verði ritari nefndarinnar.
Nýr formaður tók við stjórn fundarins.
Formaður nefndarinnar lagði fram tillögu að reglulegum fundardegi og fundartíma í samræmi við ákvæði 8. gr. samþykktar um stjórn Grundarfjarðarbæjar og verða fundir að jafnaði haldnir í Ráðhúsi Grundarfjarðar fyrsta fimmtudag hvers mánaðar, kl. 15:00.
-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 280
Siðareglur kynntar og fulltrúar beðnir um að kynna sér þær vel.
-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 280
Samþykktir um stjórn Grundarfjarðarbæjar kynntar og fulltrúar beðnir um að kynna sér þær vel.
-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 280
Bæjarstjóra er falið að vinna málið áfram.
Bókun fundar
Bæjarráð samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 280
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að formaður nefndarinnar, skipulagsfulltrúi og verkefnastjóri skipulags- og umhverfismála mæti fyrir hönd sveitarfélagsins á Skipulagsdaginn 2026. Enn fremur að skipulagsfulltrúa og verkefnisstjóra verði falið að taka þátt í skipulagsfulltrúadeginum. Óskað hefur verið eftir að hálfu HMS við verkefnisstjóra skipulags- og umhverfisnefndar að halda erindi á Skipulagsdeginum.
Bókun fundar
Bæjarráð samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 280
Skipulags- og umhverfisnefnd tekur jákvætt í málið svo fremi að aðaluppdrættir sýni fram á að megin bygging rúmist innan byggingarreits samþykkts deiliskipulags. Enn fremur að lagt verði fram samþykki eigenda fasteignar í samræmi við lög um fjöleignahús nr. 26/1994.
Bókun fundar
Bæjarráð samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 280
Skipulags- og umhverfisnefnd felur verkefnisstjóra skipulags- og umhverfismála að kanna og afla upplýsinga um hvort að áætlanir um verkefni, sem stefnt er að komi til framkvæmda á tímabilinu 2028-2033, munu líklega valda því að umhverfismarkmið vatnshlots náist ekki og sækja um heimild til breytinga á vatnshloti skv. 18 gr. laga um stjórn vatnamála ef umhverfismarkmið vatnshlots næst ekki.
-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 280
Herborg Árnadóttir kynnti framkvæmdina. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.
-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 280
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að verkefnisstjóra skipulags- og umhverfismála verði falið í samráði við skipulagsfulltrúa að skoða hvort að landsskiplagsstefna eða aðrir þættir kalli á endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins.
Bókun fundar
Bæjarráð samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 280
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja auglýsta tillögu rammahluta aðalskipulags Grundarfjarðarbæjar 2019-2039 um blágrænar ofanvatnslausnir sbr. 1. og 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. og skipulagsfulltrúa verði falið að senda samþykkt skipulag ásamt athugasemdum og umsögn um þær til staðfestingar hjá HMS sbr. 3. mgr. 32. gr. sömu laga. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.
Nefndin þakkar þeim, sem komu að mótun tillögunnar og vinnslu hennar, fyrir vel unnin störf.
Bókun fundar
Afgreiðsla tekin fyrir í 5. lið þessa fundar.
-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 280
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja auglýsta tillögu breytingar aðalskipulags Grundarfjarðarbæjar 2019-2039 um íbúðarbyggð á Háubökkum sbr. 1. og 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. og skipulagsfulltrúa verði falið að senda samþykkt skipulag ásamt athugasemdum og umsögn um þær til staðfestingar hjá HMS sbr. 3. mgr. 32. gr. sömu laga. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.
Bókun fundar
Afgreiðsla tekin fyrir í 6. lið þessa fundar.
-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 280
Herborg Árnadóttir kynnti auglýsta tillögu. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram í ljósi innsendra athugasemda.
-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 280
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að gerður verður samningur við blakdeildina um bráðabirgðastaðsetningu vallarins. Verkefnastjóra skipulags- og umhverfismála falið að vinna málið áfram í samstarfi við íþrótta- og tómstundarfulltrúa.
Bókun fundar
Bæjarráð samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 280
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir niðurtekt 7,5 m, en hafnar niðurtekt um 2,5 m vegna öryggissjónarmiða.
-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 280
Verkefnisstjóri LIFE Icewater verkefnisins kynnti stöðu mála og það sem fram undan er.
-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 280
Verkefnisstjóri skipulags og umhverfismála kynnti ofangreinda vinnu. Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að gert verði ráð fyrir ofangreindum landmótunum í næstu fjárhagsáætlun sveitarfélagsins.
Bókun fundar
Bæjarráð samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 280
Ýmis mál rædd.
-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 280
Skipulags- og umhverfisnefnd telur fyrirhugaða breytingu vera óverulega skv. 2.3.4. gr. byggingarreglugerðar og ekki skerða hagsmuni nágranna. Breytingin kallar því ekki á grenndarkynningu skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.