Lagt fram yfirlit yfir greitt útsvar janúar-júní 2026.
Bæjarráð - 658Samkvæmt yfirlitinu hefur greitt útsvar hækkað um 9,1% miðað við sama tímabil í fyrra.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja auglýsta tillögu rammahluta aðalskipulags Grundarfjarðarbæjar 2019-2039 um blágrænar ofanvatnslausnir sbr. 1. og 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. og skipulagsfulltrúa verði falið að senda samþykkt skipulag ásamt athugasemdum og umsögn um þær til staðfestingar hjá HMS sbr. 3. mgr. 32. gr. sömu laga. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.Bæjarráð - 658Bæjarráð samþykkir samhljóða auglýsta tillögu rammahluta aðalskipulags Grundarfjarðarbæjar 2019-2039 um blágrænar ofanvatnslausnir sbr. 1. og 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br.
Bæjarráð felur skipulagsfulltrúi að senda samþykkta tillögu ásamt athugasemdum og umsögn um þær til staðfestingar hjá HMS sbr. 3. mgr. 32. gr. sömu laga.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja auglýsta tillögu breytingar aðalskipulags Grundarfjarðarbæjar 2019-2039 um íbúðarbyggð á Háubökkum sbr. 1. og 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. og skipulagsfulltrúa verði falið að senda samþykkt skipulag ásamt athugasemdum og umsögn um þær til staðfestingar hjá HMS sbr. 3. mgr. 32. gr. sömu laga. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.Bæjarráð - 658Bæjarráð samþykkir samhljóða auglýsta tillögu breytingar aðalskipulags Grundarfjarðarbæjar 2019-2039 um íbúðarbyggð á Háubökkum sbr. 1. og 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br.
Bæjarráð felur skipulagsfulltrúa að senda samþykkta breytingu ásamt athugasemdum og umsögn um þær til staðfestingar hjá HMS sbr. 3. mgr. 32. gr. sömu laga.
Lagt fram minnisblað bæjarstjóra varðandi áform umhverfisráðherra að leggja niður svæðisbundin heilbrigðiseftirlit.
Bæjarráð - 658Bæjarstjóri fór yfir stöðu málsins.
Samkvæmt Aðalskipulagi Grundarfjarðar 2019-2039 er svæði ÍB6 skilgreint sem framtíðarsvæði fyrir íbúabyggð. Bæjarráð hefur áhuga á að kanna möguleika á uppbyggingu svæðisins og áhuga markaðsaðila á þátttöku í þróun þess.
Bæjarráð - 658Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram í samráði við bæjarráð og kanna möguleika á uppbyggingu svæðisins og áhuga markaðsaðila á þátttöku í þróun þess.
Lögð fram merkjalýsing sem unnin var í samstarfi við Olíudreifingu og hafnarstjóra. Óskað er eftir samþykki bæjarráðs.
Bæjarráð - 658Bæjarráð vísar merkjalýsingu Nesvegar 4b til skipulags- og umhverfisnefndar.
Lögð fram merkjalýsing sem unnin var í samstarfi við hafnarstjóra. Óskað er eftir samþykki bæjarráðs.
Bæjarráð - 658Bæjarráð vísar merkjalýsingu Nesvegar 6 til skipulags- og umhverfisnefndar.
Lagður fram til kynningar tölvupóstur bæjarstjóra Grundarfjarðarbæjar, Snæfellsbæjar og Sveitarfélagsins Stykkishólms til ráðherra um tilnefningu Sigurðar Gísla Guðjónssonar í skólanefnd FSN.
Bæjarráð - 658