Málsnúmer 2607003F

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 659. fundur - 18.08.2026

Bæjarráð samþykkir samhljóða fundargerð 281. fundar skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Óskað er eftir upplýsingum um hvort mögulegt sé að fá undanþágu frá ákvæðum um lágmarksfjarlægð mannvirkja frá vatnsborði vegna byggingar á frístundahúsi á landi Mýrarhúsa og breytingar á deiliskipulagi í samræmi við það. Skipulags- og umhverfisnefnd - 281 Um er að ræða undanþágu frá gr. 5.3.2.14 skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 er varðar fjarlægð frá vötnum, ám og sjó í dreifbýli. Félags- og húsnæðismálaráðherra veitir umrædda undanþágu að undangenginni umsögn sveitarfélags og Húsnæðis-, mannvirkja og skipulagsstofnunar. Skipulags- og umhverfisnefnd getur fallist á þau rök sem lögð eru fram með fyrirspurninni en bendir á að samþykki landeigenda innan frístundabyggðasvæðis F1 í aðalskipulagi þarf að liggja fyrir við framlögn breytingar deiliskipulags. Bókun fundar Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Málið var tekið fyrir á síðasta fundi nefndarinnar. Til stóð að vera með 5 m niðurtekt við Fellabrekku 5 skv. verðkönnunargögnum, en samþykkt var af nefndinni að heima niðurtekt á 7,5 m, en því hafnað að heimila að auki 2,5 m af niðurtekt við sömu lóð. Aðstæður hafa verið rýndar nánar og málið skoðað betur. Íbúðarhúsið á Fellabrekku 5 er nálægt götu, í krappri beygju og ekki með aðgengi að bílastæði í götu. Skipulags- og umhverfisnefnd - 281 Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir eftir nánari skoðun að heimila að auki 2,5 m niðurtekt á gangstétt við þá 7,5 m sem heimilaðir voru á síðasta fundi nefndarinnar af öryggissjónarmiðum. Bókun fundar Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Verið er að endurnýja gangstétt og við það þrengist gatan. Eitt bílastæði er á lóð Hlíðarvegar 1 og lóðin er nálægt gatnamótum. Óskað er eftir að fjölga bílastæðum um tvö á lóðinni. Skipulags- og umhverfisnefnd - 281 Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir 5 m niðurtekt á gangstétt af öryggissjónarmiðum, þar sem talið er öruggara að hafa ökutæki innan lóðar en í götu vegna nálægðar við gatnamót. Bókun fundar Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Hafin er vinna við gerð viðmiða um niðurtekt á gangstéttum innan þéttbýlis. Skipulags- og umhverfisnefnd - 281 Verkefnisstjóri skipulags- og umhverfismála kynnti málið. Skipulags- og umhverfisnefnd felur verkefnisstjóra að vinna málið áfram og að stefnt skuli að því að fyrstu drög að viðmiðum verði lögð fyrir nefndina í haust.
  • Með merkjalýsingu þessari er verið að breyta afmörkun lóðar Nesvegar 4b og stækka. Lóðin er uppmæld 726,3 fm. Hins vegar reyndust mikilvægir innviðir Olíudreifingar utan lóðamarka og er því afmörkun og stærð lóðarinnar lagfærð. Lóðarleigusamningur mun vera endurnýjaður til samræmis við þessa merkjalýsingu.

    Stærð lóðarinnar verður eftir uppmælingu og aðlögun að innviðum 1001 fm að stærð.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 281 Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarráð sem fer með umboð bæjarstjórnar yfir sumartímann að samþykkja framlagða merkjalýsingu Nesvegar 4b með fyrirvara um breytingar í samræmi við ábendingar skipulagsfulltrúa. Bókun fundar Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Með merkjalýsingu þessari er verið að breyta afmörkun lóðar Ölkelduvegar 17 og stækka hana til suðurs, þe. inn á lóð Ölkelduvegar 19. Megin ástæða stækkunarinnar er breyting notkun lóðarinnar, úr einbýlishúsalóð í parhúsalóð. Lóðin sem er skráð í fasteignaskrá 911 fm að stærð stækkar i 1.161 fm og eru þeir 250 fm sem lóðin stækkar um teknir úr aðliggjandi lóð Ölkelduvegar 19 og minnkar lóðin nr. 19 sem því nemur.

    Við breytta notkun lóðarinnar mun hún breyta um heiti og verða Ölkelduvegur 17a og 17b.

    Ölkelduvegur 19, sem er skráð 868 fm í fasteignaskrá, mun vera felld út úr fasteignaskrá eftir að úr henni hafa verið teknir 250 fm sem sameinast lóð Ölkelduvegar 17. Við niðurfellingu lóðarinnar renna þeir 618 fm sem eftir standa inn í upprunaland hennar, Grafarland, L190037, sem stækkar sem því nemur úr 40.553 fm í 41.171 fm.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 281 Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarráð sem fer með umboð bæjarstjórnar yfir sumartímann að samþykkja framlagða merkjalýsingu Ölkelduvegar 17a og 17b með fyrirvara um breytingar í samræmi við ábendingar skipulagsfulltrúa. Bókun fundar Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Með merkjalýsingu þessari er heiti lóðar breytt úr Nesvegi 6 6-8 í Nesveg 6. Lóðin Nesvegur 6 er stækkuð, en hún er skráð 800 fm í fasteignaskrá.

    Stærð lóðar verður eftir uppmælingu og aðlögun að innviðum 1269,7 fm.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 281 Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarráð sem fer með umboð bæjarstjórnar yfir sumartímann að samþykkja framlagða merkjalýsingu Nesvegar 6 með fyrirvara um breytingar í samræmi við ábendingar skipulagsfulltrúa. Bókun fundar Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Með merkjalýsingu þessari er lóðin Fellasneið 5 minnkuð úr 701 fm, sem er skráð stærð hennar í fasteignaskrá, í 649 fm til samræmis við samþykkta deiliskipulagsbreytingu.

    Minnkun lóðarinnar, 52 fm, rennur saman við upprunalandið,
    Hellnafell, L136614 og F2114669 sem stækkar sem því nemur.

    Með merkjalýsingu þessari er lóðin Fellasneið 7 minnkuð úr 652 fm, sem er skráð stærð hennar í fasteignaskrá, í 624 fm til samræmis við samþykkta deiliskipulagsbreytingu.

    Minnkun lóðarinnar, 28 fm, rennur saman við upprunalandið,
    Hellnafell, L136614 og F2114669, sem stækkar sem því nemur.

    Hellnafell er ekki með skráða stærð í fasteignaskrá.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 281 Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarráð sem fer með umboð bæjarstjórnar yfir sumartímann að samþykkja framlagða merkjalýsingu Fellasneiðar 5 og 7 með fyrirvara um breytingar í samræmi við ábendingar skipulagsfulltrúa. Bókun fundar Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Sótt hefur verið um lóðirnar við Fellabrekku 7-13. Skipulags- og umhverfisnefnd - 281 Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leiti að úthluta Thor Magnússyni, ásamt Vélsmiðju Grundarfjarðar, lóðum að Fellabrekku 7-13 sbr. gr. 1.2. um samþykkt um úthlutun lóða í Grundarfirði. Sbr. gr. 3.3. í samþykkt um úthlutun lóða í Grundarfirði, skulu framkvæmdir hafnar innan sex mánaða frá úthlutun lóðar.
    Bókun fundar Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Borist hefur erindi frá Ungmennafélaginu um að skoða afmörkun landnotkunar ÍÞ-4 á skíðasvæðinu til samræmis við fyrirhugaða uppbyggingu. Verkefnastjóri skipulags- og umhverfismála bendir enn fremur á að skoða þurfi afmörkun á tjaldsvæði AF-2 og íþróttasvæði ÍÞ-5 í aðalskipulagi.
    Einnig hefur verið umræða um hvort eigi að deiliskipuleggja þetta svæði ásamt hluta af upplandinu sem helst í hendur við Upplandsverkefni Icewater.

    Nýleg skýrsla frá COWI um ofanvatn á þessu svæði gefur einnig tilefni fyrir heildstæða framtíðarsýn fyrir svæðið upp á gatnagerð, aðkomu og fleira.

    Á sama tíma er verið að vinna að merkjalýsingu fyrir skíðasvæðið og nýtt aðstöðuhús en þar þarf að tilgreina skv. Byggingareglugerð:
    Aðkomu og bílastæði
    Snjómokstur og þjónustu (snúningsrými, aðkomu björgunaraðila)
    Brunavarnir (fjarlægðir og aðgengi slökkviliðs)
    Fráveitu/vatnsmál (rotþró ef við á)
    Útisvæði / notkun í kringum hús (t.d. gestir, búnaður o.fl.)

    Verkefnastjóri skipulags- og umhverfismála leggur fram fyrirspurn til nefndarinnar um framtíðarhorfur fyrir þetta svæði.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 281 Málið lagt fram og verkefnisstjóra skipulags- og umhverfismála er þakkað fyrir góða kynningu. Góðar umræður voru um málið.
  • Farið yfir nokkur skipulags-og framkvæmdaleyfisverkefni. Skipulags- og umhverfisnefnd - 281 Formaður og skipulagsfulltrúi kynntu ýmis mál sem eru í undirbúningi.
  • Borist hefur fjöldi tilnefninga. Skipulags- og umhverfisnefnd - 281 Skipulags- og umhverfisnefnd fagnar fjölda tilnefninga og mun vinna úr þeim. Niðurstöður verða kunngjörðar á degi íslenskrar náttúru þann 16. september nk.
  • Takið daginn frá þann 16. september nk. kl. 10:00!

    Grundarfjarðarbær ásamt Leikskólanum Sólvöllum og Grunnskóla Grundarfjarðar er að skipuleggja gróðursetningadag á leikskólalóðinni.

    Þetta er sambærilegt verkefni og var á grunnskólalóðinni fyrir ári síðan.

    Sá viðburður heppnaðist svo vel að stefnt er á að gera þetta að árlegum viðburði, "Gróðursetningargleði á degi íslenskrar náttúru".

    Á hverju ári verður nýr staður valinn til gróðursetningar og með tímanum geta íbúar, stofnanir og fyrirtæki tilnefnt eða sótt um svæði fyrir verkefnið.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 281 Verkefnisstjóri skipulags- og umhverfismála kynnti málið. Skipulags- og umhverfisnefnd fagnar verkefninu og er sammála um að þetta verði árlegur viðburður. Verkefnisstjóra falið að vinna málið áfram.