Málsnúmer 2608002

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 13. fundur - 15.09.2026

Sótt er um byggingarheimild til að byggja nýtt geymsluhúsnæði með nettóflatarmál upp á 19,6 m2. Sambærilegur geymsluskúr var rifinn fyrir um ári síðan vegna slæms ástands og verða sökkull og plata endurnýtt. Ekki er til deiliskipulag fyrir svæðið. Fyrri skúr var byggður árið 2013 og staðfestir nágranni á Grundarvegi 9 með undirritun samþykki sitt fyrir byggingunni, en skúrinn stendur upp við lóðamörk.
Byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráform á grundvelli fyrirliggjandi gagna. Þar sem um er að ræða endurbyggingu á skúr er fyrra samþykki eiganda nágrannalóðar talið fullnægjandi og byggingarfulltrúaembættið mun tilkynna honum um þá niðurstöðu. Byggingarheimild verður gefin að uppfylltum skilyrðum gr. 2.3.8. í byggingarreglugerð 112/2012.