Málsnúmer 2608002Vakta málsnúmer
Sótt er um byggingarheimild til að byggja nýtt geymsluhúsnæði með nettóflatarmál upp á 19,6 m2. Sambærilegur geymsluskúr var rifinn fyrir um ári síðan vegna slæms ástands og verða sökkull og plata endurnýtt. Ekki er til deiliskipulag fyrir svæðið. Fyrri skúr var byggður árið 2013 og staðfestir nágranni á Grundarvegi 9 með undirritun samþykki sitt fyrir byggingunni, en skúrinn stendur upp við lóðamörk.