Lagt fram yfirlit yfir greitt útsvar janúar-júlí 2026.Bæjarráð - 659Samkvæmt yfirlitinu hefur greitt útsvar hækkað um 11,2% miðað við sama tímabil í fyrra.
Bæjarráð lauk yfirferð sinni á umsóknum um starf skipulags- og byggingafulltrúa. Umsóknarfrestur um starf skipulags og/eða byggingarfulltrúa rann út þann 15 júlí sl. Alls bárust 20 umsóknir og hefur bæjarráð farið yfir þær.
Bæjarráð - 659Bæjarráð fór yfir niðurstöðu ráðningarferlis vegna starfs skipulags- og/eða byggingarfulltrúa.
Að lokinni yfirferð umsókna, viðtölum og mati á fyrirliggjandi upplýsingum var það niðurstaða bæjarráðs að ekki yrði ráðist í ráðningu í starfið að svo stöddu.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við þá aðila sem sinna í dag þjónustu skipulagsfulltrúa og byggingarfulltrúa fyrir sveitarfélagið um áframhaldandi fyrirkomulag þjónustunnar og leggja niðurstöðu fyrir bæjarráð.
Lagt fram til kynningar minnisblað um nýja gjaldskrá stöðuleyfa ásamt ítarefni. Málið var undirbúið og samþykkt af fyrri bæjarstjórn 13. mars sl. og eru nýjar reglur og gjaldskrá tilbúin til auglýsingar í B-deild stjórnartíðinda og þá taka þær gildi.
Bæjarráð - 659Guðmundur kynnti málið.
Lögð fram styrkbeiðni Setbergssóknar um styrk í formi grastorfs og göngustígaefni til að fegra kirkjugarðinn í sumar.
Bæjarráð - 659AJ vék af fundi undir þessum lið og FÞÞ tók við stjórn hans.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram.
Samþykkt samhljóða.
AJ tók aftur sæti sitt á fundinum og tók við stjórn hans.
Lagt fram bréf Innviðaráðuneytisins með erindi til allra sveitarfélaga vegna vinnu við endurskoðun stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga.
Bæjarráð - 659
Lagður fram til kynningar samningur á milli Ungmennafélags Grundarfjarðar og Grundarfjarðarbæjar um staðsetningu, uppsetningu og viðhald á grasblakvelli við Borgarbraut 18b.
Bæjarráð - 659