Lögð fram tillaga um aðal- og varamenn í ungmennaráði Grundarfjarðarbæjar.
Lögð fram tillaga að aðalmenn í ungmennaráði verði
Gunnar Smári Ragnarsson, Alma Dís Kjartansdóttir, Ellen Alexandra Tómasdóttir, Jódís Kristín Jónsdóttir og Kjartan Jósefsson.
Klara Dögg Tryggvadóttir er tilnefnd sem varamaður í ungmennaráðið.
Íþrótta- og tómstundanefnd samþykkir þessar tillögur fyrir ungmennaráð Grundarfjarðarbæjar.
Lagt fyrir til samþykktar nýtt erindisbréf fyrir ungmennaráð Grundarfjarðarbæjar. Erindisbréfið hefur verið uppfært með hliðsjón af gildandi lögum og samþykkt um stjórn Grundarfjarðarbæjar og kemur í stað eldra erindisbréfs ráðsins.