119. fundur 13. október 2026 kl. 17:00 - 19:45 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Ragnheiður Dröfn Benidiktsdóttir (RDB)
  • Hallfríður Guðný Ragnarsdóttir
  • Halldóra Dögg Hjörleifsdóttir
Starfsmenn
  • Hinrik Konráðsson (HK) íþrótta- og tómstundafulltrúi
Fundargerð ritaði: Hinrik Konráðsson (HK) íþrótta- og tómstundafulltrúi
Dagskrá

1.OP-5 Upplandið

Málsnúmer 2510017Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkti í október 2025 tillögu verkefnisstjóra skipulags- og umhverfismála, íþrótta- og tómstundafulltrúa og forstöðumanns menningar- og markaðsmála, um að stofna samráðshóp um skipulag og nýtingu upplandsins ofan þéttbýlis (OP-5). Þremenningarnir lögðu til að samráðshópurinn væri skipaður aðilum úr þeim nefndum er málið varðar, þ.e. skipulags- og umhverfisnefnd, íþrótta- og tómstundanefnd og menningarnefnd (aðilar úr öðrum nefndum kallaðir inn eftir þörfum), sem og fulltrúum bæjarstjórnar. Hlutverk samráðshópsins verði að fá hagaðila saman að borðinu til þess að mynda sameiginlega sýn um svæðið, forsendur fyrir frekari ákvörðunum og uppbyggingu. Óskað er eftir að íþrótta- og tómstundanefnd tilnefni einn fulltrúa í samráðshópinn og einn varamann.
Íþrótta- og tómstundanefnd tilnefnir Hallfríði Guðný Ragnarsdóttur sem fulltrúa sinn og Halldóru Dögg Hjörleifsdóttur sem varamann í samráðshóp um skipulag og nýtingu upplandsins ofan þéttbýlis.

2.Ályktun Ungmennaþings Vesturlands 2026

Málsnúmer 2609018Vakta málsnúmer

Ungmennaþing Vesturlands 2026 leggur fram eftirfarandi ályktanir fyrir Alþingi, sveitarstjórnir á Vesturlandi og aðra ráðamenn. Ályktanirnar eru byggðar á umræðum og vinnu ungmenna á þinginu.
Íþrótta- og tómstundanefnd fagnar ályktun ungmennaþingsins og tekur jákvætt undir öll atriði hennar.

Nefndin tekur sérstaklega undir ályktun þingsins að meira samstarf í íþróttum sé að hinu góða og tryggja eigi þátttöku allra ungmenna og barna óháð búsetu. Nefndin harmar því niðurstöðu Ungmennafélags Víkings í Snæfellsbæ að slíta samstarfi sínu við önnur íþróttafélög á Snæfellsnes (Snæfellsnes samstafið) og vonum við að þeir endurskoði þá ákvörðun og haldi því góða samstarfi áfram.

Í framhaldi af ályktun ungmennaþings Vesturlands um mikilvægi þess að félagsmiðstöðvar unglinga séu starfræktar í eigin húsnæði þá hvetur nefndin bæjarstjórn Grundarfjarðar að skoða þann möguleika líkt og nefndin setti fram í 118. fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar.

Nefndin hrósar unga fólkinu á Vesturlandi sem lagði fram sinn tíma og vinnu við að mæta á ungmennaþing Vesturlands til að vinna að málefnum unga fólksins, greinilegt að framtíðin er björt.

3.Íþróttavika Evrópu 2026

Málsnúmer 2606025Vakta málsnúmer

Farið var yfir framkvæmd Íþróttaviku Evrópu, sem haldin var í lok september, og rætt hvernig til tókst.
Nefndin lýsir yfir ánægju með hvernig til tókst með alla viðburði og þá fjölbreyttu dagskrá sem var í boði.

4.Erindisbréf ungmennaráðs - 2026

Málsnúmer 2608005Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga um aðal- og varamenn í ungmennaráði Grundarfjarðarbæjar.
Lögð fram tillaga að aðalmenn í ungmennaráði verði
Gunnar Smári Ragnarsson, Alma Dís Kjartansdóttir, Ellen Alexandra Tómasdóttir, Jódís Kristín Jónsdóttir og Kjartan Jósefsson.

Klara Dögg Tryggvadóttir er tilnefnd sem varamaður í ungmennaráðið.

Íþrótta- og tómstundanefnd samþykkir þessar tillögur fyrir ungmennaráð Grundarfjarðarbæjar.

5.Frístundarstyrkur

Málsnúmer 2305002Vakta málsnúmer

Umræða um frístundarstyrk í Grundarfirði.
Íþrótta- og tómstundanefnd leggur til að bæjarstjórn skoði þann möguleika að taka upp frístundastyrk fyrir íbúa Grundarfjarðar. Telur nefndin að með frístundastyrk þá fái allir jöfn tækifæri til að stunda sína íþrótt eða tómstund. Öll sveitarfélög á Vesturlandi fyrir utan Grundarfjörð og Stykkishólm bjóða íbúum sínum upp á frístundastyrk.

Nefndin leggur samt áherslu á það að frístundastyrkurinn myndi ekki draga úr öðrum styrkjum til íþróttafélaga í Grundarfirði.

Nefndin er tilbúin til að koma á bæjarstjórnarfund og ræða við bæjarfulltrúa um hugmyndir sínar að frístundastyrkjum í Grundarfirði.

6.Þríhyrningur

Málsnúmer 2311030Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðu mála varðandi Þríhyrninginn.
Á 110. fundi íþrótta- og tómstundanefndar lagði nefndin áherslu á það að saga Þríhyrningsins yrði skráð á skilti sem fengin hafði verið styrkur fyrir.

Nefndin óskar eftir því að skoðað verði hver staðan á styrknum sé og einnig kannað hver staðan er á útfærslu á skiltunum fyrir Þríhyrninginn.

Nefndin leggur til að þetta verkefni verði unnið með menningarnefnd Grundarfjarðarbæjar.

7.Önnur mál

Málsnúmer 1808037Vakta málsnúmer

Umræða fór fram um að setja upp kraftæki hjá hoppubelgnum. Kraftæki eru sérstaklega hönnuð líkamsræktartæki til notkunar utandyra sem öllum yrði frjálst að nota. Ákveðið að skoða þetta betur fyrir næsta fund íþrótta- og tómstundanefndar.
Lokið við fundargerð að loknum fundi og rafræns samþykkis aflað hjá fundarmönnum.

Fundi slitið - kl. 19:45.