Mikið ofanvatn hefur verið til vandræða á svæði ofan við íþróttahús og niður að íþróttavelli. Ákveðið var að fara markvist í greiningu á vatninu og finna heildstæða lausn á málinu. Vandræði hafa skapast meðal annars í seyrulosun, í ærslabelg, borholusvæði, tjaldsvæði við ruslaskýli, og á íþróttasvæði við stúkur. Allt þetta vatn á sömu upptökin og hefur COWI útbúið fyrir okkur blágrænt skipulag um hvernig við komum vatninu á öruggan hátt í gegnum svæðið og út í Gilsá. Til kynningar er skýrsla COWI ásamt ráðleggingum á framkvæmdum og forgansröðun verkefna. Málið er til kynningar upp á að finna út hvað skal framkvæma strax og hvað skal setja í næstu fjárhagsáætlanirÍþrótta- og tómstundanefnd - 118Lagt fram til kynningar. Nefndin lýsir yfir ánægju með þá vinnu sem hefur verið lögð í þetta verkefni og eru spennt fyrir þeim árangri sem getur hlotist af því.
Grundarfjarðarbær ásamt Leikskólanum Sólvöllum og Grunnskóla Grundarfjarðar er að skipuleggja gróðursetningadag í leiksklólalóðinni.
Þetta er sambærilegt verkefni og við vorum með í grunnskólalóðinni fyrir ári síðan.
Sá viðburður heppnaðist svo vel að við stefnum nú á að gera þetta að árlegum viðburði, ?Gróðursetningargleði á degi íslenskrar náttúru?.
Á hverju ári verður nýr staður valinn til gróðursetningar og með tímanum geta íbúar, stofnanir og fyrirtæki tilnefnt eða sótt um svæði fyrir verkefnið.Íþrótta- og tómstundanefnd - 118Lagt fram til kynningar. Nefndin fagnar þessu framtaki.
Samningur á milli Ungmennafélag Grundarfjarðar og Grundarfjarðarbæjar um staðsetningu, uppsetningu og viðhald á grasblakvelli við Borgarbraut 18bÍþrótta- og tómstundanefnd - 118Lagt fram til kynningar.
Nefndin hrósar UMFG fyrir flott framtak og einnig þeim aðilum sem komu að uppsetningu blakvallarins.
Farið yfir starfssemi félagsmiðstöðvarinnar Eden skólaárið 2026-2027. Rætt um breytingar á opnunartímum Eden yfir veturinn.
Íþrótta- og tómstundanefnd - 118Nefndin leggur ríka áherslu á að hafinn verði undirbúningur að nýju framtíðarhúsnæði fyrir félagsmiðstöðina Eden.
Núverandi húsnæði Eden uppfyllir ekki þær væntingar sem gera verður til nútímalegrar félagsmiðstöðvar fyrir börn og ungmenni og er ekki sambærilegt við þá aðstöðu sem er í boði í öðrum félagsmiðstöðvum á Snæfellsnesi. Mikilvægt er að börn og ungmenni í Grundarfirði hafi aðgang að vandaðri, aðlaðandi og fjölbreyttri aðstöðu sem styður við öflugt félags- og tómstundastarf.
Nefndin telur að ekki sé hægt að bíða lengur með þetta verkefni og hvetur bæjarstjórn til að setja framtíðarhúsnæði Eden í forgang og hefja markvissa vinnu við þarfagreiningu, staðsetningu og mögulegar útfærslur.
Jafnframt verði skoðað hvort framtíðaruppbygging Eden geti skapað tækifæri til að þróa öfluga ungmenna- og félagsmiðstöð á Snæfellsnesi, með aðstöðu sem getur stutt við aukið samstarf, fjölbreyttari starfsemi og viðburði fyrir ungmenni af öllu svæðinu.
Nefndin telur mikilvægt að sveitarfélagið sýni metnað og frumkvæði í málaflokknum og skapi Eden umgjörð sem endurspeglar mikilvægi félagsmiðstöðvarstarfs fyrir börn og ungmenni.
UMFG óskar eftir að samstarfi í uppbyggingu á nýjum sparkvelli á vegum KSÍ og FIFA.
FIFA Arena er nýtt verkefni sem Alþjóða knattspyrnusambandið (FIFA) hefur sett af stað til að byggja upp mini-knattspyrnuvelli (mini-pitches) víðs vegar um heiminn. Markmið verkefnisins er að skapa öruggar, aðgengilegar og góðar aðstæður fyrir börn og ungmenni, sérstaklega í samfélögum þar sem aðstöðu til fótboltaiðkunar er ábótavant.
Um verkefnið:
- Vellirnir eru smærri en hefðbundnir knattspyrnuvellir, 20m x 40m og henta vel fyrir 5 eða 7 manna bolta. Vellirnir þola mikla notkun, bæði skipulagða og óskipulagða.
- Gervigras af FIFA-vottaðri gerð er á völlunum. Það er sérstaklega hannað fyrir mikla notkun og er án innfylliefna, sem tryggir lítið viðhald og umfram allt notkun yfir allt árið.
- Vellirnir eru girtir og umhverfis þá er fjögurra metra há girðing. Innbyggð mörk eru á hvorum enda (3m x 1m).
- FIFA sér um uppsetningu vallanna og annars sem þeim tilheyra - að undanskildu undirlagi, aðgengi og umhverfisfrágangi.
- FIFA og KSÍ standa straum af flutningi sparkvallanna til landsins og á viðkomandi uppsetningarstað, öllum efnum sem þarf svo sem gervigrasi, grindverki, netum og mörkum og uppsetningunni sjálfri.
- Hlutverk sveitarfélags/íþróttafélags er að finna vellinum staðsetningu með undirlagi sem mætir stöðlum FIFA. Staðsetning vallar skal vera í grennd við skóla og/eða svæði sem muni nýtast til fótboltaiðkunar.
- Völlurinn mun vera í eigu sveitarfélags/íþróttafélags og mun eigandinn bera ábyrgð á viðhaldi og umhirðu vallar sem og daglegum rekstri.Íþrótta- og tómstundanefnd - 118Lagt fram til kynningar. Nefndin lýsir yfir mikilli ánægju með verkefnið og fagnar frumkvæði UMFG með samstarf í þessu verkefni.
Íþróttavika Evrópu verður haldin 23.-30.september 2026. Grundarfjarðarbær mun taka þátt eins og síðustu ár.
Drög að dagskrá kynnt.Íþrótta- og tómstundanefnd - 118Nefndin lýsir yfir ánægju með dagskrá Íþróttaviku Evrópu og fagnar því að Grundarfjarðarbær hefur fengið styrk frá ÍSÍ fyrir íþróttavikuna.