Málsnúmer 2608014

Vakta málsnúmer

Íþrótta- og tómstundanefnd - 118. fundur - 01.09.2026

UMFG óskar eftir að samstarfi í uppbyggingu á nýjum sparkvelli á vegum KSÍ og FIFA.



FIFA Arena er nýtt verkefni sem Alþjóða knattspyrnusambandið (FIFA) hefur sett af stað til að byggja upp mini-knattspyrnuvelli (mini-pitches) víðs vegar um heiminn. Markmið verkefnisins er að skapa öruggar, aðgengilegar og góðar aðstæður fyrir börn og ungmenni, sérstaklega í samfélögum þar sem aðstöðu til fótboltaiðkunar er ábótavant.



Um verkefnið:

- Vellirnir eru smærri en hefðbundnir knattspyrnuvellir, 20m x 40m og henta vel fyrir 5 eða 7 manna bolta. Vellirnir þola mikla notkun, bæði skipulagða og óskipulagða.



- Gervigras af FIFA-vottaðri gerð er á völlunum. Það er sérstaklega hannað fyrir mikla notkun og er án innfylliefna, sem tryggir lítið viðhald og umfram allt notkun yfir allt árið.



- Vellirnir eru girtir og umhverfis þá er fjögurra metra há girðing. Innbyggð mörk eru á hvorum enda (3m x 1m).



- FIFA sér um uppsetningu vallanna og annars sem þeim tilheyra - að undanskildu undirlagi, aðgengi og umhverfisfrágangi.



- FIFA og KSÍ standa straum af flutningi sparkvallanna til landsins og á viðkomandi uppsetningarstað, öllum efnum sem þarf svo sem gervigrasi, grindverki, netum og mörkum og uppsetningunni sjálfri.



- Hlutverk sveitarfélags/íþróttafélags er að finna vellinum staðsetningu með undirlagi sem mætir stöðlum FIFA. Staðsetning vallar skal vera í grennd við skóla og/eða svæði sem muni nýtast til fótboltaiðkunar.



- Völlurinn mun vera í eigu sveitarfélags/íþróttafélags og mun eigandinn bera ábyrgð á viðhaldi og umhirðu vallar sem og daglegum rekstri.
Lagt fram til kynningar. Nefndin lýsir yfir mikilli ánægju með verkefnið og fagnar frumkvæði UMFG með samstarf í þessu verkefni.

Bæjarstjórn - 314. fundur - 10.09.2026

Lagður fram tölvupóstur frá UMFG þar sem óskað er eftir samstarfi um umsókn í FIFA Arena verkefni FIFA og KSÍ vegna mögulegrar uppbyggingar sparkvallar í Grundarfirði. Jafnframt lagt fram minnisblað bæjarstjóra.



FIFA Arena er verkefni á vegum Alþjóðaknattspyrnusambandsins (FIFA) og Knattspyrnusambands Íslands (KSÍ). Markmið þess er að bæta aðstöðu barna og ungmenna til knattspyrnuiðkunar, sérstaklega í samfélögum þar sem aðstöðu er ábótavant. Um er að ræða FIFA-vottaðan sparkvöll sem er 20 x 40 metrar að stærð. Völlurinn hentar meðal annars til æfinga, skólaíþrótta, minni leikja og frjálsrar hreyfingar barna og ungmenna. Umsóknarfrestur er til 18. september 2026.



Verkefnið felur í sér áhugavert tækifæri til að bæta aðstöðu barna og ungmenna til íþróttaiðkunar í Grundarfirði með verulegu framlagi frá FIFA og KSÍ. Völlurinn gæti nýst skólastarfi, skipulögðu íþróttastarfi og frjálsri hreyfingu.



Óskað er eftir því við bæjarstjórn að hún veiti bæjarstjóra heimild til að vinna að og senda inn umsókn í FIFA Arena verkefni FIFA og KSÍ í samstarfi við Ungmennafélag Grundarfjarðar. Verði umsókn samþykkt verði nánari útfærsla verkefnisins, kostnaður og kostnaðarskipting lögð fyrir bæjarstjórn til afgreiðslu áður en framkvæmdir hefjast.

Íþrótta- og tómstundafulltrúi fór yfir málið og hugmynd að staðsetningu.

Bæjarstjórn veitir bæjarstjóra heimild í samvinnu við UMFG að leggja inn umsókn í FIFA Arena verkefnið.

Samþykkt samhljóða.

Gestir

  • Hinrik Konráðsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi - mæting: 14:52