Málsnúmer 2608021

Vakta málsnúmer

Menningarnefnd - 55. fundur - 31.08.2026

Erindi frá Gerum það núna ehf. um það hvernig hægt sé að nýta sögu Grundarfjarðarbæjar betur til uppbyggingar samfélagsins og ferðaþjónustu.
Menningarnefnd þakkar Gerum það núna ehf. fyrir erindið og felur forstöðumanni menningar- og markaðsmála að boða Gerum það núna ehf. til þess að ræða hvernig við getum lyft sögunni okkar á hærra plan.
Lokið við fundargerð að loknum fundi og rafræns samþykkis aflað hjá fundarmönnum.

Menningarnefnd - 57. fundur - 09.11.2026

Yfirferð yfir verkefnið Við eigum sögu.
Fulltrúar Gerum það núna ehf. þeir Einar Sveinn Ólafsson og Daniel Firica komu inn á fund og sögðu frá Gerum það núna ehf. Einnig sögðu þeir frá hugmyndinni að Fiskisögusafni Grundarfjarðar.

Menningarnefnd þakkar fyrir erindið, sem var kynnt og rætt á fundinum, og lýsir ánægju með það frumkvæði sem að baki því býr. Erindið byggir á því að varðveita og lyfta upp þeirri sögu sem sveitarfélagið hefur að geyma. Gera hana sýnilega og aðgengilega fyrir íbúa og ferðamenn og er menningarnefnd sammála því að þarna sé saga sem mikilvægt er að gera hærra undir höfði.

Einar Sveinn Ólafsson - mæting 16:35
Daniel Firica - mæting 16:35