55. fundur 31. ágúst 2026 kl. 16:15 - 18:45 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Rakel Birgisdóttir (RB)
  • Ágústa Einarsdóttir (ÁE)
  • Sigurborg Knarran Ólafsdóttir (SKÓ)
Starfsmenn
  • Pálmi Jóhannsson (PJ) starfsmaður
  • Birkir Jón Jónsson (BJJ) bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Pálmi Jóhannsson
Dagskrá

1.Erindisbréf menningarnefndar, kosning formanns, varaformanns og ritara

Málsnúmer 2608019Vakta málsnúmer

Erindisbréf menningarnefndar lagt fram.
Erindisbréf nefndarinnar var kynnt fyrir fundarmönnum.

Menningarnefnd samþykkti að formaður nefndarinnar verði Rakel Birgisdóttir og varaformaður nefndarinnar verði Ágústa Einarsdóttir Jafnframt var samþykkt að forstöðumaður menningar- og markaðsmála verði ritari nefndar.

Nýr formaður tók við stjórn fundarins.

2.Siðareglur kjörinna fulltrúa

Málsnúmer 2606019Vakta málsnúmer

Siðareglur kjörinna fulltrúa lagðar fram.
Siðareglur kynntar og fulltrúar beðnir um að kynna sér þær vel.

3.Fundartími nefnda

Málsnúmer 2606016Vakta málsnúmer

Ákvörðun um reglulegan fundartíma og fundardaga nefndar.
Formaður nefndarinnar lagði fram tillögu að reglulegum fundardegi og fundartíma í samræmi við ákvæði 8. gr. samþykktar um stjórn Grundarfjarðarbæjar og verða fundir að jafnaði haldnir í Ráðhúsi Grundarfjarðar á sex vikna fresti. Fundartími er mánudagar kl. 16:15.

4.Verkefni menningarnefndar 2026-2030

Málsnúmer 2608016Vakta málsnúmer

Yfirferð yfir verkefni menningarnefndar kjörtímabilið 2026-2030.
Rætt var um föst verkefni menningarnefndar ásamt því að fara yfir komandi viðburði.

Umræða um verkefnið Vinir bókasafnsins.

Umræða um undirbúning fyrir jóladagskrá 2026.

Umræða um 17. júní.

5.Rökkurdagar 2026

Málsnúmer 2608015Vakta málsnúmer

Umræða um Rökkurdaga 2026
Stefnt er að því að Rökkurdagar verði haldnir á tímabilinu 24. október - 7. nóvember

Forstöðumaður menningar- og markaðsmála kynnti fyrir nefndinni þá viðburði sem nú þegar eru í undirbúningi.

Nefndin felur forstöðumanni menningar- og markaðsmála að setja út auglýsingu fyrir viðburði á Rökkurdögum.

6.Kvikmyndaklúbbur

Málsnúmer 2608020Vakta málsnúmer

Forstöðumaður menningar- og markaðsmála segir frá fundi sem hann átti með áhugasömum aðilum um stofnun kvikmyndaklúbbs.



Hugmyndin er sú að hér sé starfræktur kvikmyndaklúbbur, sem er opinn öllum. Áherslan er heildræn nálgun á kvikmyndir, allt frá hugmynd að fullbúinni kvikmynd.
Menningarnefnd fagnar þessu frumkvæði og felur forstöðumanni menningar- og markaðsmála að boða til fundar með þessum aðilum.

7.Frönsk kvikmyndahátíð í Grundarfirði

Málsnúmer 2603022Vakta málsnúmer

Samtal hefur átt sér stað milli franska sendiráðsins og Grundarfjarðarbæjar um að halda franska kvikmyndahátíð. Staða verkefnisins kynnt fyrir menningarnefnd.
Menningarnefnd tekur vel í þá hugmynd að halda franska kvikmyndahátíð í Grundarfirði og leggur til að hún verði haldin um miðjan febrúar.

Nefndin felur forstöðumanni menningar- og markaðsmála að halda áfram með verkefnið.

8.SSV - Barnamenningarhátíð 2026

Málsnúmer 2608017Vakta málsnúmer

Barnamenningarhátíðin Barnó Best Mest Vest verður haldin á tímabilinu 1.-31. október 2026.

Forstöðumaður menningar- og markaðsmála kynnir Barnó fyrir nefndinni.

9.Skóla- og íþróttasvæði - ofanvatn

Málsnúmer 2607003Vakta málsnúmer

Mikið ofanvatn hefur verið til vandræða á svæði ofan við íþróttahús og niður að íþróttavelli. Ákveðið var að fara markvist í greiningu á vatninu og finna heildstæða lausn á málinu. Vandræði hafa skapast meðal annars í seyrulosun, í ærslabelg, borholusvæði, tjaldsvæði við ruslaskýli, og á íþróttasvæði við stúkur. Allt þetta vatn á sömu upptökin og hefur COWI útbúið fyrir okkur blágrænt skipulag um hvernig við komum vatninu á öruggan hátt í gegnum svæðið og út í Gilsá. Til kynningar er skýrsla COWI ásamt ráðleggingum á framkvæmdum og forgansröðun verkefna. Málið er til kynningar upp á að finna út hvað skal framkvæma strax og hvað skal setja í næstu fjárhagsáætlanir.
Nanna Vilborg Harðadóttir verkefnisstjóri skipulags- og umhverfismála kynnir verkefnið fyrir nefndinni.

10.Gróðursetningardagur

Málsnúmer 2607027Vakta málsnúmer

Takið daginn frá!



Grundarfjarðarbær ásamt Leikskólanum Sólvöllum og Grunnskóla Grundarfjarðar er að skipuleggja gróðursetningadag í leiksklólalóðinni.



Þetta er sambærilegt verkefni og við vorum með í grunnskólalóðinni fyrir ári síðan.



Sá viðburður heppnaðist svo vel að við stefnum nú á að gera þetta að árlegum viðburði, ?Gróðursetningargleði á degi íslenskrar náttúru?.



Á hverju ári verður nýr staður valinn til gróðursetningar og með tímanum geta íbúar, stofnanir og fyrirtæki tilnefnt eða sótt um svæði fyrir verkefnið.
Nanna Vilborg Harðadóttir verkefnisstjóri skipulags- og umhverfismála kynnir verkefnið fyrir nefndinni.

11.Rut Rúnarsdóttir - Fyrirspurn vegna Samkomuhúss

Málsnúmer 2608018Vakta málsnúmer

Fyrirspurn varðandi reglur og áfengissölu í Samkomuhúsinu
Menningarnefnd þakkar Rut fyrir erindið. Menningarnefnd telur að núverandi fyrirkomulag geti aftrað því að viðburðir séu haldnir í Samkomuhúsinu. Algengt er að viðburðahaldarar taki ágóða í hurð og á bar til þess að standa undir viðburðarhaldi. Menningarnefnd lýsir yfir áhuga á því að prófa að breyta til í fyrirfram ákveðinn tíma, t.d. tvö ár.

12.Gerum það núna ehf. - Við eigum sögu

Málsnúmer 2608021Vakta málsnúmer

Erindi frá Gerum það núna ehf. um það hvernig hægt sé að nýta sögu Grundarfjarðarbæjar betur til uppbyggingar samfélagsins og ferðaþjónustu.
Menningarnefnd þakkar Gerum það núna ehf. fyrir erindið og felur forstöðumanni menningar- og markaðsmála að boða Gerum það núna ehf. til þess að ræða hvernig við getum lyft sögunni okkar á hærra plan.
Lokið við fundargerð að loknum fundi og rafræns samþykkis aflað hjá fundarmönnum.

Fundi slitið - kl. 18:45.