Sótt er um byggingarleyfi fyrir óupphitað og óeinangrað 60 m2 stálbogahús á jörðinni Innri-Látravík. Húsið yrði notað sem hesthús. Undirstöður eru úr járnbentri steinsteypu og klæðning hússins er báraðar málmplötur. Húsið yrði staðsett við hlið fjárhúsa sem eru svipuð að lögun og stærð og nýtir sömu aðkomu Ekki liggur fyrir deiliskipulag, en skv. aðalskipulagi er svæðið landbúnaðarland. Samkvæmt aðalskipulagi Grundarfjarðarbæjar er heimilt að gera ráð fyrir mannvirkjagerð sem búskapur og landbúnaðarnot jarðarinnar kalla á.