Málsnúmer 2609020

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd - 282. fundur - 07.10.2026

Óskað er eftir breytingu deiliskipulags Mýrarhúsa. Deiliskipulagið er innan frístundabyggðasvæðið F1 skv. aðalskipulagi. Breytingin felur í sér að ný frístundalóð merkt 7 er skilgreind á milli lóða 1 og 4. Lóðin er 1.050 m2 að stærð og innan byggingarreits verði heimilt að reisa allt að 95 m2 frístundahús og hámarkshæð húss verði 5 m. Samanber gr. 5.3.2.14 skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 skal ekki reisa mannvirki nær vötnum, ám eða sjó en 50 m. Fyrirhuguð bygging er rúmum 30 m frá Lárvaðli. Bakki Lárvaðals er hár á þessu svæði og ekki er beint aðgengi að fjörunni frá lóðum. Séð úr fjörunni verður húsin upp á bakkanum lítt áberandi vegna hæðarmunarins. Staðsetning hússins mun því ekki hafa áhrif á för fólks meðfram vaðlinum. Sækja þarf um undanþágu hjá félags- og húsnæðismálaráðherra frá ofangreindri grein skipulagsreglugerðar þegar samþykkt breyting liggur fyrir og að fenginni jákvæðri umsögn Húsnæðis, mannvirkja og skipulagsstofnunar HMS. Svæðið er utan svæðis á náttúrminjaskrá og innan svæðis er ekki um að ræða náttúrufyrirbæri sem njóta sérstakrar verndar skv. 61. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013. Samkvæmt Fornleifaskrá Grundarfjarðarbæjar er einn minjastaður (nr. 290) suðvestan svæðisins sem breytingin tekur til og hefur hann talsvert minjagildi. Friðhelgað svæði umhverfis minjarnar er 15 m skv. 22 gr. laga um menningarminjar nr. 80/2012. Ekki er gert ráð fyrir framkvæmdum nærri minjum. Fyrir liggur lóðaleigusamningur fyrir lóð nr. 7 við landeigendur landeignar L136648. Samþykki annarra landeigenda liggur ekki fyrir.
Skipulags- og umhverfisnefnd fellst á þau rök sem lögð eru fram gagnvart fyrirhugaðri staðsetningu húss við Lárvaðal og að óskað verði eftir undanþágu hjá félags- og húsnæðismálaráðherra á þeim forsendum þegar samþykkt breyting liggur fyrir. Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytingu deiliskipulags sbr. 1. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 til auglýsingar og skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.