282. fundur 07. október 2026 kl. 15:00 - 17:00 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Þuríður Gía Jóhannesdóttir (ÞGJ) formaður
  • Bjarni Sigurbjörnsson (BS)
  • Signý Gunnarsdóttir (SG)
  • Hrafnhildur Bárðardóttir (HB)
Starfsmenn
  • Guðmundur Rúnar Svansson (GRS) starfsmaður umhverfis- og skipulagssviðs
  • Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir (SÓÁ) skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði: Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir skipulagsfulltrúi
Dagskrá
Sólveig Ásta Bergvinsdóttir var fjarverandi

1.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Naustáll 192225 - Flokkur 1

Málsnúmer 2609011Vakta málsnúmer

Landeigandi sækir um byggingarleyfi fyrir 240 m2 geymslu á einni hæð. Hæð byggingar er 6,33 m. Byggingarfulltrúi vísar málinu til nefndarinnar af 14. afgreiðslufundi sínum þar sem ekki er í gildi deiliskipulag. Bygging er fyrirhuguð á efnistökusvæði E-8, en efnistöku er lokið á þeim hluta námunnar.
Skipulags og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að grenndarkynna byggingarleyfisumsókn sbr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir ISAVIA, Naustáll flugvelli, Samgöngustofu, Naustál 1, 6, 7 og 8, Þórdísarstöðum, Akurtröðum, Lækjarhvammi 1, Norður Hlíð, Mið Hlíð og Suður Hlíð. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.
ÞGJ vék af fundi við afgreiðslu málsins

2.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Fagurhólstún 7 - Flokkur 1

Málsnúmer 2608001Vakta málsnúmer

Lóðarhafi sækir um byggingarleyfi fyrir 50,4 m2 bílskúr að Fagurhólstúni 7. Bílsskúrinn yrði á steyptum undirstöðum og með steypta botnplötu. Bílskúrinn yrði byggður úr timburgrind og timburþaki en klætt með báruáli. Bílskúrinn stendur við lóðamörk. Byggingarfulltrúi vísar málinu til skipulagsfulltrúa af 13. afgreiðslufundi sínum þar sem ekki liggur fyrir deiliskipulag. Fagurhólstún 7 er innan svæðis ÍB-2 samkvæmt aðalskipulagi. Samkvæmt skipulagsákvæði svæðis ÍB-2 er heimilt að leyfa breytingar á núverandi húsnæði og nýbyggingar (endurbyggingar) sem falla vel að einkennum og yfirbragði þeirrar byggðar sem fyrir er.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að grenndarkynna byggingarleyfisumsókn sbr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir Fagurhól 4, 6, 6a, 8, 8a og Fagurhólstún 5, 9, 10, 12 og 14. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.

3.Kirkjufellsfoss, 2. áfangi, umsókn um framkvæmdaleyfi

Málsnúmer 2610005Vakta málsnúmer

Óskað er eftir framkvæmdaleyfi 2. áfanga við Kirkjufellsfoss. Um er að ræða annars vegar endurbætur á stígnum frá nýju útsýnispöllunum og niður með ánni að austanverðu með þrepuðum stíg gerður úr náttúrugrjóti og hins vegar nýr steyptur stígur frá aðkomutorgi við bílastæði að gömlu brúnni sem mun tryggja gott aðgengi allra að efsta útsýnispallinum. Í gildi er deiliskipulag fyrir svæðið og þar segir að lega göngustíga sé leiðbeinandi en lega þeirra getur breyst á hönnunar- og framkvæmdastigi. Enn kemur fram að efnisnotkun skuli taka mið af nærumhverfinu og falla sem best að staðnum og ekki sé gert ráð fyrir lýsingu á göngustíg. Gert er ráð fyrir dökkri steypu með grófkústuðu yfirborði í göngustíg frá aðkomutorgi við bílastæði og að gömlu brúnni. Þrepaður stígur meðfram ánni að austanverðu verður gerður úr náttúrugrjóti. Framkvæmdaleyfisumsókn samræmist deiliskipulagi. Framkvæmd er í fullu samráði við landeigendur.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að skipulagsfulltrúa verði heimilt að veita framkvæmdaleyfi sbr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þegar öll gögn málsins liggja fyrir sbr. 7. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012, samþykki landeigenda og framkvæmdaleyfisgjald hefur verið greitt.

4.Óveruleg breyting á deiliskipulagi Ölkeldudals (leiðrétting)

Málsnúmer 2603003Vakta málsnúmer

Óveruleg breyting deiliskipulags Ölkeldudals öðlaðist gildi með auglýsingu sem birtist í B-deild Stjórnartíðinda þann 19. ágúst 2026 og varðar að gerð er breyting á fjórum reitum í skilmálatöflu í kafla 6.11 á bls. 41 í deiliskipulagsgreinargerðinni, sem er undirkafli kafla 6, Skilmálar á lóðum. Lýsing á Ölkelduvegi 18 og 29 breytist úr parhúsi í raðhús. Breytingin fyrir Ölkelduveg 41 varðar hámarks byggingarmagn fyrir annars vegar sérbýli og hins vegar raðhús við lóðina. Eftir breytinguna er skráð hámarksbyggingarmagn sérbýla 220 m² en hámarksbyggingarmagn fyrir raðhús 180 m². Engar breytingar eru gerðar á uppdrætti deiliskipulagsins, þar eru tölur rétt skráðar og gerðir húsa sýndar rétt. Aðeins er verið að leiðrétta samræmi milli uppdráttar og greinargerðar.
Auglýsing lögð fram og kynnt.
Fylgiskjöl:

5.Mýrarhús, breyting deiliskipulags

Málsnúmer 2609020Vakta málsnúmer

Óskað er eftir breytingu deiliskipulags Mýrarhúsa. Deiliskipulagið er innan frístundabyggðasvæðið F1 skv. aðalskipulagi. Breytingin felur í sér að ný frístundalóð merkt 7 er skilgreind á milli lóða 1 og 4. Lóðin er 1.050 m2 að stærð og innan byggingarreits verði heimilt að reisa allt að 95 m2 frístundahús og hámarkshæð húss verði 5 m. Samanber gr. 5.3.2.14 skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 skal ekki reisa mannvirki nær vötnum, ám eða sjó en 50 m. Fyrirhuguð bygging er rúmum 30 m frá Lárvaðli. Bakki Lárvaðals er hár á þessu svæði og ekki er beint aðgengi að fjörunni frá lóðum. Séð úr fjörunni verður húsin upp á bakkanum lítt áberandi vegna hæðarmunarins. Staðsetning hússins mun því ekki hafa áhrif á för fólks meðfram vaðlinum. Sækja þarf um undanþágu hjá félags- og húsnæðismálaráðherra frá ofangreindri grein skipulagsreglugerðar þegar samþykkt breyting liggur fyrir og að fenginni jákvæðri umsögn Húsnæðis, mannvirkja og skipulagsstofnunar HMS. Svæðið er utan svæðis á náttúrminjaskrá og innan svæðis er ekki um að ræða náttúrufyrirbæri sem njóta sérstakrar verndar skv. 61. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013. Samkvæmt Fornleifaskrá Grundarfjarðarbæjar er einn minjastaður (nr. 290) suðvestan svæðisins sem breytingin tekur til og hefur hann talsvert minjagildi. Friðhelgað svæði umhverfis minjarnar er 15 m skv. 22 gr. laga um menningarminjar nr. 80/2012. Ekki er gert ráð fyrir framkvæmdum nærri minjum. Fyrir liggur lóðaleigusamningur fyrir lóð nr. 7 við landeigendur landeignar L136648. Samþykki annarra landeigenda liggur ekki fyrir.
Skipulags- og umhverfisnefnd fellst á þau rök sem lögð eru fram gagnvart fyrirhugaðri staðsetningu húss við Lárvaðal og að óskað verði eftir undanþágu hjá félags- og húsnæðismálaráðherra á þeim forsendum þegar samþykkt breyting liggur fyrir. Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytingu deiliskipulags sbr. 1. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 til auglýsingar og skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.

6.Umhverfisviðurkenningar Grundarfjarðarbæjar 2026

Málsnúmer 2606038Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd kom saman til vinnufundar þann 15.9.2026. Sólveig Ásta Bergvinsdóttir lýsti sig vanhæfa. Bjarni Sigurbjörnsson gat ekki mætt en gerði grein fyrir sínu vali. Mættir á fundinn voru Þuríður Gía Jóhannesdóttir, formaður nefndarinnar, Hrafnhildur Bárðardóttir og Eiríkur Þór Halldórsson, varamaður í stað Signýjar Gunnarsdóttur.
Það var samdóma álit nefndarinnar að Fossahlíð 6 fengi umhverfisviðurkenningu fyrir heimili ársins. Við valið var horft til snyrtileika lóðar, umhirðu húsnæðis og þess metnaðar sem einkennir allt umhverfið. Hjónin Jón Snorrason og Selma Friðfinnsdóttir lögðu um áratugaskeið mikla rækt við hús og lóð og byggðu upp einstaklega fallegan garð sem ber glöggt vitni um alúð, natni og ómælda vinnu. Garðurinn hefur þróast og dafnað í gegnum árin og er í dag sannkölluð prýði fyrir hverfið og bæinn allan.
Að baki þessu fallega umhverfi liggur gríðarleg vinna sem staðið hefur yfir um árabil. Með þrautseigju, umhyggju og ást á staðnum hafa þau skapað heild sem vekur athygli fyrir fegurð, snyrtimennsku og þann metnað sem lagðir hefur verið í hvert smáatriði.
Grundarfjarðarbær þakkar fyrir það framlag til fegrunar og bættu umhverfi sem þar hefur verið sýnt í verki til margra ára og minnir um leið á það dýrmæta starf sem hjónin unnu saman að uppbyggingu þessa fallega heimilis.
Enn fremur var það samdóma álit nefndarinnar að veita Bjargarsteini umhverfisviðurkenning Grundarfjarðarbæjar fyrir Prýði atvinnulífsins 2026.
Um árabil var þar rekið eitt þekktasta og virtasta veitingahús landsins sem margir bæjarbúar og gestir minnast með hlýju. Í dag er í húsinu rekin gistiþjónusta, en sá metnaður sem einkennt hefur staðinn frá upphafi er enn til staðar.
Húsnæðið og umhverfi þess bera vott um einstaklega góða umhirðu og natni. Eigendur hafa lagt mikla vinnu í viðhald, fegrun og uppbyggingu staðarins í gegnum árin og skapað umhverfi sem er bæði hlýlegt og aðlaðandi.
Grundarfjarðarbær þakkar eigendum fyrir metnað þeirra og umhyggju fyrir staðnum í gegnum árin. Bjargarsteinn hefur um langt skeið verið bænum til sóma og er vel að því kominn að vera Prýði atvinnulífsins 2026.

7.Önnur mál umhverfis- og skipulagssviðs

Málsnúmer 2201020Vakta málsnúmer

Farið yfir nokkur skipulags- og byggingarmál
Formaður og skipulagsfulltrúi kynntu ýmis mál sem eru í undirbúningi.
Nanna Vilborg Harðardóttir, verkefnastjóri skipulags- og umhverfismála, sat fundinn undir þessum lið.

Fundi slitið - kl. 17:00.