Haldinn var fundur með Veitum 1.10.sl. þar sem farið var yfir stöðu vatnsbóls Grundarfjarðar sem er merkt VB-1, VG-1 og VF-1 í Aðalskipulagi Grundarfjarðar 2019-2039. Samkvæmt stefnumörkun aðalskipulags skal svæði VB-1, sem er brunnsvæði, friðað fyrir búfénaði og girt af mannheldri girðingu minnst 5 m frá vatnsbóli. Á svæði VG-1, sem er grannsvæði, er notkun á hættulegum efnum og birgðageymsla slíkra efna bönnuð. Svæðið skal einnig friðað fyrir búfénaði. Innan svæðis VF-1, sem er fjarsvæði, skal gætt fylgstu varúðar í meðferð efna í samræmi við svæði VG-1 þar sem vitað er um sprungur eða misgengi. Samanber fundi með Veitum er ljóst að nauðsynlegt er að tryggja betur vernd brunn- og grannsvæðisins einkum er varðar ágang búfénaðar, áburðargjöf og gönguleið sem liggur um brunnsvæðið.