283. fundur 04. nóvember 2026 kl. 15:00 - 17:45 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Þuríður Gía Jóhannesdóttir (ÞGJ) formaður
  • Bjarni Sigurbjörnsson (BS)
  • Sólveig Ásta Bergvinsdóttir (SÁB)
  • Hrafnhildur Bárðardóttir (HB)
Starfsmenn
  • Birkir Jón Jónsson (BJJ) bæjarstjóri
  • Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir (SÓÁ) skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði: Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir skipulagsfulltrúi
Dagskrá
Signý Gunnarsdóttir var fjarverandi

1.Blágrænt ofanvatnsskipulag - Rammahluti aðalskipulags

Málsnúmer 2508011Vakta málsnúmer

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) staðfesti 25. september 2026 breytingu á aðalskipulagi Grundarfjarðarbæjar 2019-2039 sem samþykkt var af bæjarráði Grundarfjarðarbæjar 21. júlí 2026. Auglýsing birtist í B-deild Stjórnartíðinda þann 9. október 2026.



Í rammahluta aðalskipulags er mörkuð stefna um blágrænar ofanvatnslausnir og almenningsrými innan þéttbýlis Grundarfjarðar.
Staðfesting á Rammahluta aðalskipulags Grundarfjarðarbæjar vegna blágrænna ofanvatnslausna lögð fram og kynnt.

2.Deiliskipulag Grundarfjarðarhafnar

Málsnúmer 2508010Vakta málsnúmer

Lögð fram til umræðu tillaga deiliskipulags hafnarinnar sem unnin var í tíð fyrri bæjarstjórnar.
Farið yfir stöðu málsins og bæjarstjóra falið að ræða við skipulagsráðgjafa um framhald verkefnisins.

3.OP-5 Upplandið

Málsnúmer 2510017Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkti í október 2025 tillögu verkefnisstjóra skipulags- og umhverfismála, íþrótta- og tómstundafulltrúa og forstöðumanns menningar- og markaðsmála, um að stofna samráðshóp um skipulag og nýtingu upplandsins ofan þéttbýlis (OP-5). Þremenningarnir lögðu til að samráðshópurinn væri skipaður aðilum úr þeim nefndum er málið varðar, þ.e. skipulags- og umhverfisnefnd, íþrótta- og tómstundanefnd og menningarnefnd (aðilar úr öðrum nefndum kallaðir inn eftir þörfum), sem og fulltrúum bæjarstjórnar. Hlutverk samráðshópsins verði að fá hagaðila saman að borðinu til þess að mynda sameiginlega sýn um svæðið, forsendur fyrir frekari ákvörðunum og uppbyggingu. Óskað er eftir að skipulags- og umhverfisnefnd tilnefni einn fulltrúa í samráðshópinn og einn varamann.
Lagt er til við bæjarstjórn að Þuríður Gía Jóhannesdóttir verði fulltrúi í samráðshópi og Sólveig Ásta Bergvinsdóttir verði varamaður fulltrúans.

4.Merkjalýsing Skerðingsstaðir

Málsnúmer 2606044Vakta málsnúmer

Með merkjalýsingu þessari er verið að stofna lóð úr landi Skerðingsstaða L136655. Nafn lóðar verður Skerðingsstaðir 2. Lóðin er innan svæðis sem er skilgreind sem verslunar- og þjónustusvæði í Aðalskipulagi Grundarfjarðarbæjar 2019-2039. Merkjalýsing er ekki í samræmi við deiliskipulag þar sem ekki er skilgreind lóð innan þess. Lóðin verður 46.894,4 fm að stærð.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja framlagða merkjalýsingu Skerðingsstaða 2 með fyrirvara um breytingar í samræmi við ábendingar skipulagsfulltrúa.

5.Merkjalýsing Borg skíðaskáli

Málsnúmer 2611003Vakta málsnúmer

Með merkjalýsingu þessari er verið að stofna lóð úr landi Borgar Grafarlands L174834. Nafn lóðar verður Borg Skíðaskáli. Lóðin er innan svæðis sem er skilgreind sem íþróttasvæði í Aðalskipulagi Grundarfjarðarbæjar 2019-2039. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu. Lóðin verður 591 fm að stærð.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja framlagða merkjalýsingu Borgar Skíðaskála.

6.Merkjalýsing Gilósflöt aðstöðuhús

Málsnúmer 2611004Vakta málsnúmer

Með merkjalýsingu þessari er verið að stofna lóð úr landi Gilósflatar L136911. Nafn lóðar verður Gilósflöt aðstöðuhús. Lóðin er innan svæðis sem er skilgreind sem íþróttasvæði í Aðalskipulagi Grundarfjarðarbæjar 2019-2039. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu. Lóðin verður 115 fm að stærð.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja framlagða merkjalýsingu Gilósflatar aðstöðuhús.

7.Merkjalýsing Ártún 6 og 8

Málsnúmer 2611005Vakta málsnúmer

Með merkjalýsingu þessari er verið að stofna tvær lóðir úr landi Grafarlands L190037. Nafn lóða verður Ártún 6 og Ártún 8. Lóðin er innan svæðis sem er skilgreind sem iðnaðarsvæðis í Aðalskipulagi Grundarfjarðarbæjar 2019-2039. Merkjalýsing víkur lítilega frá gildandi deiliskipulagi. Ártún 6 verður 2.5474 fm að stærð og Ártún 8 verður 2.164 fm.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja framlagða merkjalýsingu Ártúns 6 og Ártúns 8.

8.Umhirða opinna svæða

Málsnúmer 2609021Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað verkefnastjóra skipulags- og umhverfismála um endurskoðun á umhirðu opinna svæða og áframhald verkefnisins "Viljandi villt".



Markmiðið með þessu verkefni er að greina hvort opin svæði séu að hluta slegin reglulega vegna hefðar og fyrra verklags, fremur en vegna skýrrar notkunar eða þarfar. Með þeirri greiningu verður hægt að leggja mat á hvort breyta megi umhirðu einstakra svæða án þess að skerða umferðaröryggi, aðgengi, leik- og útivistarnotkun eða snyrtilegt yfirbragð bæjarins. Með þessu verður hægt að skera niður kostnað á grasslætti og finna aðrar lausnir.
Málið lagt fram og kynnt.

Gestir

  • Nanna Vilborg Harðardóttir - mæting: 15:55

9.Olíudreifing - lóðarmál á hafnarsvæði

Málsnúmer 2406040Vakta málsnúmer

Bæjarstjóri og Hafnarstjóri óska eftir umboði til að gera lóðarleigusamning vegna Nesvegs 12. Ekki verði kvöð um uppbyggingu á næstu árum og greiðslu gatnagerðargjalda verði frestað.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að úthluta Olíudreifingu lóð við Nesveg 12, í samræmi við gildandi deiliskipulag Framness austan Nesvegar.
Nefndin samþykkir, með vísan til sérstakra aðstæðna málsins, núverandi starfsemi Olíudreifingar á hafnarsvæðinu og fyrirhugaðra innviðaframkvæmda þar, að vikið verði frá almennu ferli um lóðaúthlutun, sbr. 8. gr. úthlutunar lóða í Grundarfirði, er varðar framkvæmda- og byggingarfrest og að heimilt verði að gera lóðarleigusamning þótt framkvæmdir á lóðinni séu ekki fyrirhugaðar að svo stöddu.
Olíudreifing greiði hefðbundin afgreiðslu- og úthlutunargjöld vegna lóðarinnar og kostnað vegna gerðar og þinglýsingar lóðarleigusamnings eftir því sem við á. Gatnagerðargjöld vegna lóðarinnar verði ekki innheimt við úthlutun eða gerð lóðarleigusamnings, heldur þegar framkvæmdir á lóðinni hefjast, samkvæmt þeim reglum og gjaldskrá sem þá gilda.
Við gerð lóðarleigusamnings verði jafnframt tryggð sérstök heimild Grundarfjarðarbæjar til uppsagnar samningsins hafi fyrirhuguð nýting lóðarinnar ekki hafist innan átta ára frá undirritun hans. Nánari skilmálar uppsagnarheimildarinnar verði útfærðir í lóðarleigusamningi.
Nefndin vísar framangreindum frávikum frá almennum úthlutunarskilmálum til bæjarstjórnar til staðfestingar og felur hafnarstjóra að vinna áfram að gerð lóðarleigusamnings á framangreindum grundvelli.

10.Ölkeldan leit að uppsprettu

Málsnúmer 2610015Vakta málsnúmer

Til umfjöllunar er staða Ölkeldunnar í Ölkeldudal, sem nýtur hverfisverndar en er nú ekki lengur sýnileg eða virk með sama hætti og áður. Ekki liggur fyrir hvað varð til þess að virkni hennar hvarf. Lagt er til að ráðist verði í markvissa gagnaöflun og sérfræðimat með það að markmiði að skýra stöðu hennar og kanna möguleika á vernd og endurheimt.
Málið lagt fram og kynnt.

Gestir

  • Nanna Vilborg Harðardóttir - mæting: 16:09

11.Umhverfishópur Snæfellsnes

Málsnúmer 2610013Vakta málsnúmer

Nýr samstarfshópur um umhverfismál á Snæfellsnesi hefur verið stofnaður. Markmið hópsins er að efla samstarf, miðla þekkingu og samræma áherslur í umhverfismálum á svæðinu.



Hópurinn hittist mánaðarlega á Teams í um 30 mínútur þar sem þátttakendur fara yfir helstu verkefni, læra hver af öðrum og deila reynslu af því sem er í gangi á hverjum stað. Auk þess eru haldnir tveir staðfundir á ári til að styrkja tengsl, efla samstarf og skapa vettvang fyrir dýpri umræður.



Í hópnum sitja fulltrúar þeirra aðila sem sinna umhverfismálum á Snæfellsnesi, þar á meðal Sveitarfélagsins Stykkishólms, Grundarfjarðarbæjar og Snæfellsbæjar, ásamt fulltrúum frá Svæðisgarði Snæfellsnes, EarthCheck og Snæfellsjökulsþjóðgarði. Hópurinn er mikilvægur vettvangur til að samræma aðgerðir, deila góðum lausnum og styðja við sjálfbæra þróun á Snæfellsnesi.



Nanna Vilborg Harðardóttir verkefnisstjóri skipulags- og umhverfismála situr í hópnum fyrir hönd Grundarfjarðarbæjar.
Lagt fram og kynnt.

Gestir

  • Nanna Vilborg Harðardóttir - mæting: 16:16

12.Símatími skipulagsfulltrúa

Málsnúmer 2610028Vakta málsnúmer

Skipulagsfulltrúi er með símatíma á þriðjudögum milli kl. 10 og 12 í síma 430 8512.

Þannig gefst íbúum og öðrum hagsmunaaðilum tækifæri til að hafa beint samband við skipulagsfulltrúa vegna fyrirspurna og annarra mála sem tengjast skipulagsmálum.

Nefndin hvetur öll sem eiga erindi við skipulagsfulltrúa til að nýta sér auglýstan símatíma. Utan símatíma er hægt að senda póst á skipulag@grundarfjordur.is og óska eftir að haft verði samband við fyrsta tækifæri.
Lagt fram og kynnt.

13.Hundagerði

Málsnúmer 2610030Vakta málsnúmer

Hundagerði hefur verið rekið í landi Hálsa og sveitarfélagið gert samningur um það við landeigendur. Ábendingar hafa borist frá íbúum um að mjög þarft sé að sett verði upp hundagerði innan þéttbýlisins.
Farið yfir málið, mögulegar staðsetningar ræddar.

Gestir

  • Nanna Vilborg Harðardóttir - mæting: 16:20

14.Veitur - Vatnsból Grundarfjarðarbæjar

Málsnúmer 2610001Vakta málsnúmer

Haldinn var fundur með Veitum 1.10.sl. þar sem farið var yfir stöðu vatnsbóls Grundarfjarðar sem er merkt VB-1, VG-1 og VF-1 í Aðalskipulagi Grundarfjarðar 2019-2039. Samkvæmt stefnumörkun aðalskipulags skal svæði VB-1, sem er brunnsvæði, friðað fyrir búfénaði og girt af mannheldri girðingu minnst 5 m frá vatnsbóli. Á svæði VG-1, sem er grannsvæði, er notkun á hættulegum efnum og birgðageymsla slíkra efna bönnuð. Svæðið skal einnig friðað fyrir búfénaði. Innan svæðis VF-1, sem er fjarsvæði, skal gætt fylgstu varúðar í meðferð efna í samræmi við svæði VG-1 þar sem vitað er um sprungur eða misgengi. Samanber fundi með Veitum er ljóst að nauðsynlegt er að tryggja betur vernd brunn- og grannsvæðisins einkum er varðar ágang búfénaðar, áburðargjöf og gönguleið sem liggur um brunnsvæðið.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að farið verði í að skoða aðstæður til að tryggja betur vernd brunn- og grannsvæðisins og gera ráð fyrir kostnaði samfara því í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins.

15.Gönguleið að Kirkjufellsfossi og Grundarfossi

Málsnúmer 2611015Vakta málsnúmer

Í Aðalskipulagi Grundarfjarðarbæjar 2019-2039 eru skilgreindar gönguleiðir út úr þéttbýlinu, annars vegar að Kirkjufellsfossi og hins vegar að Grundarfossi. Til að auka öryggi gangandi vegfarenda er orðið brýnt að koma umræddum gönguleiðum í hönnun og framkvæmd. Vegagerðin hefur lýst áhuga á að koma að uppbyggingu gönguleiðanna meðfram Snæfellsnesvegi (54).
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að fela bæjarstjóra að eiga samtal við landeigendur og aðra hagsmunaaðila um mögulega legu og útfærslu göngu-, hjóla- og reiðstígs frá þéttbýlinu í Grundarfirði að Kirkjufellsfossi. Jafnframt samþykkir nefndin að farið verði í hönnun göngu- og hjólastígs frá þéttbýlinu í Grundarfirði að Grundarfossi.
Vegagerðin hefur veitt 20 m.kr. til stígagerðar árið 2027 vegna þessara verkefna og er gert ráð fyrir samsvarandi framlagi Grundarfjarðarbæjar. Ljóst er að um er að ræða umfangsmikil verkefni sem unnin verða í áföngum og að framkvæmd þeirra verði samstarfsverkefni Grundarfjarðarbæjar og Vegagerðarinnar til nokkurra ára.

16.Önnur mál umhverfis- og skipulagssviðs

Málsnúmer 2201020Vakta málsnúmer

Farið yfir nokkur skipulags- og byggingarmál.

Fundi slitið - kl. 17:45.