Óskað er eftir framkvæmdaleyfi 2. áfanga við Kirkjufellsfoss. Um er að ræða annars vegar endurbætur á stígnum frá nýju útsýnispöllunum og niður með ánni að austanverðu með þrepuðum stíg gerður úr náttúrugrjóti og hins vegar nýr steyptur stígur frá aðkomutorgi við bílastæði að gömlu brúnni sem mun tryggja gott aðgengi allra að efsta útsýnispallinum. Í gildi er deiliskipulag fyrir svæðið og þar segir að lega göngustíga sé leiðbeinandi en lega þeirra getur breyst á hönnunar- og framkvæmdastigi. Enn kemur fram að efnisnotkun skuli taka mið af nærumhverfinu og falla sem best að staðnum og ekki sé gert ráð fyrir lýsingu á göngustíg. Gert er ráð fyrir dökkri steypu með grófkústuðu yfirborði í göngustíg frá aðkomutorgi við bílastæði og að gömlu brúnni. Þrepaður stígur meðfram ánni að austanverðu verður gerður úr náttúrugrjóti. Framkvæmdaleyfisumsókn samræmist deiliskipulagi. Framkvæmd er í fullu samráði við landeigendur.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að skipulagsfulltrúa verði heimilt að veita framkvæmdaleyfi sbr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þegar öll gögn málsins liggja fyrir sbr. 7. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012, samþykki landeigenda og framkvæmdaleyfisgjald hefur verið greitt.