Málsnúmer 2610013

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd - 283. fundur - 04.11.2026

Nýr samstarfshópur um umhverfismál á Snæfellsnesi hefur verið stofnaður. Markmið hópsins er að efla samstarf, miðla þekkingu og samræma áherslur í umhverfismálum á svæðinu.



Hópurinn hittist mánaðarlega á Teams í um 30 mínútur þar sem þátttakendur fara yfir helstu verkefni, læra hver af öðrum og deila reynslu af því sem er í gangi á hverjum stað. Auk þess eru haldnir tveir staðfundir á ári til að styrkja tengsl, efla samstarf og skapa vettvang fyrir dýpri umræður.



Í hópnum sitja fulltrúar þeirra aðila sem sinna umhverfismálum á Snæfellsnesi, þar á meðal Sveitarfélagsins Stykkishólms, Grundarfjarðarbæjar og Snæfellsbæjar, ásamt fulltrúum frá Svæðisgarði Snæfellsnes, EarthCheck og Snæfellsjökulsþjóðgarði. Hópurinn er mikilvægur vettvangur til að samræma aðgerðir, deila góðum lausnum og styðja við sjálfbæra þróun á Snæfellsnesi.



Nanna Vilborg Harðardóttir verkefnisstjóri skipulags- og umhverfismála situr í hópnum fyrir hönd Grundarfjarðarbæjar.
Lagt fram og kynnt.

Gestir

  • Nanna Vilborg Harðardóttir - mæting: 16:16