Eigandi Grundargötu 13A fyrirhugar að skipta um tvær útidyrahurðir og sækir um samþykki fyrir þeim. Ennfremur hyggst hann setja aftur upp útidyr sem áður höfðu staðið út í garð en verið fjarlægðar og útvegg lokað. Útlit hurða breytist en stærð ekki. Garðdyrnar eru í samræmi við aðaluppdrátt hússins. Ekki er um að ræða útlitsbreytingu á húsi að öðru leyti.
Byggingarfulltrúi leggur til við bæjarstjórn að afgreiðslugjald vegna umsóknar falli niður.