Málsnúmer 2610024

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 15. fundur - 27.10.2026

Farið yfir atvik þar sem bátur fauk á hliðina á efnisgeymslusvæði. Er atvikið rakið til ófullnægjandi frágangs af hálfu eiganda bátsins. Talsvert magn eldsneytis kann að hafa lekið. Ekki hefur verið sótt um stöðuleyfi vegna bátsins sem var geymdur þarna án leyfis frá bænum. Slökkvilið Grundarfjarðar mat aðstæður á vettvangi og taldi ekki að um bráðamengunaratvik væri að ræða, en að æskilegt væri að báturinn yrði fjarlægður við fyrsta tækifæri til að hægt væri að leggja mat á umfang lekans og taka ákvörðun um næstu skref.
Samkvæmt gr. 2.6.1. í byggingarreglugerð 112/2012 eru bátar stöðuleyfisskyldir lausafjármunir. Samkvæmt gr. 2.6.2. hefur byggingarfulltrúi heimild til að krefjast þess að eigandi fjarlægi bátinn innan hæfilegs frests. Ennfremur er það mat byggingarfulltrúa eftir skoðun á vettvangi að frágangur sé enn ófullnægjandi og báturinn uppfylli því ekki kröfur um frágang sem koma fram í gr. 2.6.1. Verður því farið fram á það við eiganda að hann fjarlægi bátinn. Að öðrum kosti hefur byggingarfulltrúi heimild til að láta fjarlægja bátinn á kostnað eiganda, sbr. gr. 2.6.2.