Í Aðalskipulagi Grundarfjarðarbæjar 2019-2039 eru skilgreindar gönguleiðir út úr þéttbýlinu, annars vegar að Kirkjufellsfossi og hins vegar að Grundarfossi. Til að auka öryggi gangandi vegfarenda er orðið brýnt að koma umræddum gönguleiðum í hönnun og framkvæmd. Vegagerðin hefur lýst áhuga á að koma að uppbyggingu gönguleiðanna meðfram Snæfellsnesvegi (54).
Vegagerðin hefur veitt 20 m.kr. til stígagerðar árið 2027 vegna þessara verkefna og er gert ráð fyrir samsvarandi framlagi Grundarfjarðarbæjar. Ljóst er að um er að ræða umfangsmikil verkefni sem unnin verða í áföngum og að framkvæmd þeirra verði samstarfsverkefni Grundarfjarðarbæjar og Vegagerðarinnar til nokkurra ára.