Málsnúmer 2611018

Vakta málsnúmer

Menningarnefnd - 57. fundur - 09.11.2026

Erindi varðandi jólabókaflóð barnanna.
Menningarnefnd þakkar fyrir erindið. Mikilvægt er að Grundarfjarðarbær styðji við verkefnið Jólabókaflóð barnanna og komi að kaupum á þeim bókum sem notaðar eru. Allar bækur sem eru í jólabókaflóðinu eru nýjar og hefði megnið af þeim verið keypt inn óháð jólabókaflóðinu. Menningarnefnd beinir því til forstöðumanns menningar- og markaðsmála að reikna með þessum bókakaupum í fjárhagsáætlanagerð og við innkaup á bókum í aðdraganda jóla.