57. fundur 09. nóvember 2026 kl. 16:15 - 19:45 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Rakel Birgisdóttir (RB)
  • Sigurborg Knarran Ólafsdóttir (SKÓ)
  • Hallfríður Guðný Ragnarsdóttir (HGR)
Starfsmenn
  • Pálmi Jóhannsson (PJ) starfsmaður
  • Birkir Jón Jónsson (BJJ) bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Pálmi Jóhannsson Forstöðumaður menningar- og markaðsmála
Dagskrá
Formaður setti fund og lagði til að tekinn yrði með afbrigðum inn á dagskrá fundarinn dagskrárliðurinn Köttur úti í Mýri - Jólabókaflóð barnanna sem yrði nr. 8 á dagskrá.

1.Verkefni menningarnefndar 2026-2030

Málsnúmer 2608016Vakta málsnúmer

Farið yfir verkefni menningarnefndar á tímabilinu 2026-2030.





Farið var yfir helstu verkefni sem eru á borði menningarnefndar. Rætt var m.a. um ljósmyndasamkeppni Grundarfjarðarbæjar og Barnamenningarhátíð Vesturlands.

2.Sögumiðstöðin

Málsnúmer 1801048Vakta málsnúmer

Umræða um Sögumiðstöðina
Áframhaldandi umræða um Sögumiðstöðina. Í fyrsta skipti í langan tíma eru öll rými Sögumiðstöðvarinnar tilbúin til notkunar, verkefnið er því að finna út bestu leiðina til þess að nýta rýmin sem best. Rætt var um mismunandi notkun yfir vetur og sumar.

3.Gerum það núna ehf. - Við eigum sögu

Málsnúmer 2608021Vakta málsnúmer

Yfirferð yfir verkefnið Við eigum sögu.
Fulltrúar Gerum það núna ehf. þeir Einar Sveinn Ólafsson og Daniel Firica komu inn á fund og sögðu frá Gerum það núna ehf. Einnig sögðu þeir frá hugmyndinni að Fiskisögusafni Grundarfjarðar.

Menningarnefnd þakkar fyrir erindið, sem var kynnt og rætt á fundinum, og lýsir ánægju með það frumkvæði sem að baki því býr. Erindið byggir á því að varðveita og lyfta upp þeirri sögu sem sveitarfélagið hefur að geyma. Gera hana sýnilega og aðgengilega fyrir íbúa og ferðamenn og er menningarnefnd sammála því að þarna sé saga sem mikilvægt er að gera hærra undir höfði.

Einar Sveinn Ólafsson - mæting 16:35
Daniel Firica - mæting 16:35

4.Verðlaunasamkeppni - Áningarstaður

Málsnúmer 2610011Vakta málsnúmer

Farið yfir verkefnið og aðkomu menningarnefndar.

5.Samkomuhús - gjaldskrá

Málsnúmer 2608018Vakta málsnúmer

Samkomuhús, umræður.
Forstöðumaður menningar- og markaðsmála fór yfir stöðuna á verkefninu.

6.Rökkurdagar 2026

Málsnúmer 2608015Vakta málsnúmer

Farið yfir Rökkurdaga 2026.
Farið var yfir dagskrá Rökkurdaga. Menningarnefnd lýsti yfir ánægju með það hvernig veturinn byrjar og þakkar íbúum fyrir það frumkvæði sem þeir hafa sýnt í viðuburðarhaldi og mætingu.

7.Jólin 2026

Málsnúmer 2611016Vakta málsnúmer

Jólin 2026 skipulögð.
Farið var yfir jóladagskránna.

8.Köttur úti í mýri - Jólabókaflóð barnanna

Málsnúmer 2611018Vakta málsnúmer

Erindi varðandi jólabókaflóð barnanna.
Menningarnefnd þakkar fyrir erindið. Mikilvægt er að Grundarfjarðarbær styðji við verkefnið Jólabókaflóð barnanna og komi að kaupum á þeim bókum sem notaðar eru. Allar bækur sem eru í jólabókaflóðinu eru nýjar og hefði megnið af þeim verið keypt inn óháð jólabókaflóðinu. Menningarnefnd beinir því til forstöðumanns menningar- og markaðsmála að reikna með þessum bókakaupum í fjárhagsáætlanagerð og við innkaup á bókum í aðdraganda jóla.
Lokið við fundargerð að loknum fundi og rafræns samþykkis aflað hjá fundarmönnum.

Fundi slitið - kl. 19:45.