14. fundur 06. október 2026 kl. 11:30 - 12:00 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Karl Jóhann Haagensen
Starfsmenn
  • Guðmundur Rúnar Svansson (GRS) starfsmaður umhverfis- og skipulagssviðs
Fundargerð ritaði: Karl Jóhann Haagensen Byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Skerðingsstaðir 136655 - Flokkur 1

Málsnúmer 2604032Vakta málsnúmer

Sótt er um byggingarleyfi fyrir fimm frístundahúsum á byggingarreit austan við gamla bæjarhólinn. Lagður fram nýr aðaluppdráttur. Umsækjandi hefur jafnframt í vinnslu nýtt deiliskipulag sem gerir ráð fyrir fleiri sambærilegum frístundahúsum, en í gildandi deiliskipulagi Skerðingsstaða er gert ráð fyrir fimm frístundahúsum á reitnum sem um ræðir.
Byggingarfulltrúi samþykkir fyrirhuguð byggingaráform með fyrirvara um minniháttar lagfæringu á afstöðumynd. Áformin eru í samræmi við gildandi deiliskipulag Skerðingsstaða. Byggingarleyfi verður gefið út að uppfylltum ákvæðum gr. 2.3.8. í byggingarreglugerð 112/2008.

2.Umsókn um breytta notkun Grundargata 12-14

Málsnúmer 2605019Vakta málsnúmer

Framhald af síðasta fundi.
Að lokinni yfirferð og að teknu tilliti til þeirra breytinga sem samþykkt laga 25/2026 hefur í för með sér telur byggingarfulltrúi ekki þörf á að breyta skráningu hússins í atvinnuhúsnæði vegna fyrirliggjandi umsóknar um rekstrarleyfi. Byggingarfulltrúi leggur til að umsagnarbeiðni sýslumannsins á Vesturlandi, sbr. mál 2604021, verði tekin fyrir með hefðbundnum hætti.

3.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Naustáll 192225 - Flokkur 1

Málsnúmer 2609011Vakta málsnúmer

Sótt er um byggingarleyfi til að byggja vélageymslu í landi Naustáls. Byggingin er í notkunarflokki 1. Um er að ræða 240 m2 hús á staðsteyptum sökkli en byggt úr límtrésrömmum og klætt með steinullareiningum. Á aðaluppdrætti kemur fram afstöðumynd. Húsið er byggt á aðalskipulagsreitnum E-8 og utan við 30 metra miðlínu frá flugvellinum.
Ekki liggur fyrir deiliskipulag fyrir svæðið og er umsókninni vísað til skipulags- og umhverfisnefndar. Byggingarleyfisumsókn verður tekin fyrir að lokinni meðferð nefndarinnar.

4.Girðing milli lóða Hlíðarvegur 9 og 11

Málsnúmer 2610006Vakta málsnúmer

Sótt er um byggingarleyfi til að reisa girðingu upp að gangstétt milli Hlíðarvegs 9 og 11. Fyrir liggur undirritað samþykki beggja lóðarhafa. Sækja þarf um byggingarleyfi þar sem fyrirhuguð hæð girðingar er 2,0 m, en skv. byggingarreglugerð er girðing allt að 1,8 m einungis tilkynningarskyld.
Byggingarfulltrúi samþykkir áformin.

5.Ný samþykkt og gjaldskrá stöðuleyfa

Málsnúmer 2505026Vakta málsnúmer

Lögð fram til umræðu reglur og gjaldskrá stöðuleyfa sem bæjarstjórn samþykkti fyrr á árinu. Samþykktin felur í sér lækkun stöðuleyfisgjalda og að ólíkar gerðir stöðuleyfa eru felldar niður. Rætt um verklag við afgreiðslu umsókna.
Samþykkt að taka stöðuleyfisumsókni fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þegar þær hafa borist í gegnum íbúagátt. Ennfremur að afgreiðslugjald stöðuleyfisumsókna hækki ekki í samræmi við byggingarvísitölu það sem eftir er af árinu. Kostnaður við afgreiðslu stöðuleyfisumsókna verður því út árið alls kr. 58.227:
39.500 fyrir stöðuleyfi
18.727 sem er afgreiðslugjald m.v. byggingarvísitölu septembermánaðar.

Áður var fjárhæð stöðuleyfisgjalds 129.164, og lækka stöðuleyfisgjöld því um 55%.

Sérstaklega er farið yfir 7. grein samþykktarinnar sem fjallar um heimildir til að fjarlægja lausamuni sem ekki hefur verið sótt um leyfi fyrir, en einhver dæmi eru um að ekki hafi verið sótt um stöðuleyfi vegna lausafjármuna hjá sveitarfélaginu.
Í lok fundar er rætt um tímasetningu afgreiðslufunda og er stefnt að því að þeir verði að jafnaði haldnir mánudag fyrir fund skipulags- og umhverfisnefndar. Samkvæmt því eru næstu afgreiðslufundir 2. og 30. nóvember, en skiuplags- og umhverfisnefnd fundar að jafnaði fyrsta fimmtudag í hverjum mánuði. Sé tilefni til er hægt að fjölga afgreiðslufundum byggingarfulltrúa.

Fundi slitið - kl. 12:00.