663. fundur 26. nóvember 2026 kl. 08:15 - 11:32 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Aðalsteinn Jósepsson (AJ) formaður
  • Jósef Ó. Kjartansson (JÓK)
  • Fannar Þór Þorfinnsson (FÞÞ)
Starfsmenn
  • Birkir Jón Jónsson (BJJ) bæjarstjóri
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS) skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Sigurlaug R. Sævarsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá
Formaður setti fund og gengið var til dagskrár.

1.Lausafjárstaða 2026

Málsnúmer 2601006Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir lausafjárstöðu.

2.Rekstraryfirlit 2026

Málsnúmer 2605013Vakta málsnúmer

Lagt fram níu mánaða uppgjör janúar-september 2026.

Reksturinn sýnir betri afkomu en áætlun gerði ráð fyrir.

3.Fjárhagsáætlun 2027

Málsnúmer 2609002Vakta málsnúmer

Lögð fram skýrsla starfshóps um kaup á slökkvibifreið og tilboð frá HLH ráðgjöf vegna endurskoðunar starfa og skipulags innan stjórnsýslu Grundarfjarðarbæjar.

Inn á fundinn komu slökkviliðsstjóri vegna umræðu um kaup á slökkvibiðreið, verkefnastjóri tæknimála og framkvæmda vegna framkvæmda á iðnaðarsvæði og umræðu um sundlaugargarð og íþrótta- og tómstundafulltrúi vegna umræðu um sundlaugargarð.

Bæjarráð samþykkir að gerð verði verðkönnun á slökkviliðsbifreiðum og felur bæjarstjóra og slökkviliðsstjóra umsjón hennar.

Bæjarráð samþykkir jafnframt að bæta 15 millj. kr. við fjárfestingaáætlun 2027 til gatnagerðar og annarra framkvæmda á iðnaðarsvæði.

Bæjarráð samþykkir einnig tilboð HLH ráðgjafar um endurskoðun starfa og skipulags innan stjórnsýslu bæjarins.

Í kjölfar erindis frá öldungaráði felur bæjarráð bæjarstjóra að skoða afslátt fasteignaskatts til eldri borgara og öryrkja.

Samþykkt samhljóða.

Gestir

  • Valgeir Magnússon, slökkviliðsstjóri - mæting: 08:45
  • Hinrik Konráðsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi - mæting: 10:42
  • Örvar Þór Örlygsson, verkefnastjóri tæknimála og framkvæmda - mæting: 10:10

4.Sýslumaðurinn á Vesturlandi - Afskriftarbeiðni

Málsnúmer 2603017Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni Sýslumannsins á Vesturlandi um afskrift á álögðum opinberum gjöldum. Afskrifaður höfuðstóll er að fjárhæð 1.274.549 kr.
Lagt til að bæjarráð samþykki beiðni sýslumanns. Bæjarráð samþykkir afskrift á álögðum opinberum gjöldum að fjárhæð 1.274.549 kr. auk vaxta.

Samþykkt samhljóða.

5.Innheimtureglur Grundarfjarðarbæjar

Málsnúmer 2611025Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að nýjum innheimtureglum og breytingu á innkaupareglum og staðlað orðalag fyrir pantanir, samninga og önnur innkaupagögn.
Bæjarráð samþykkir framlagðar innheimtureglur, breyting á innkaupareglum og staðlað orðalag pantana, samninga og annarra innkaupagagna. Reglurnar taka gildi frá 1. janúar 2027.

Samþykkt samhljóða.

6.Hjallatún 1 - umsókn um lóð - erindi

Málsnúmer 2410025Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Þórðar Magnússonar vegna Hjallatúns 1 ásamt fleiri gögnum.

Þórður Magnússon kom inn á fundinn gegnum teams. Umræða.

Bæjarráð felur bæjarstjóra svara erindinu.

Samþykkt samhljóða.

Gestir

  • Þórður Magnússon, Vélsmiðju Grundarfjarðar - mæting: 09:00

7.Grundarfjarðarhöfn - Nesvegur 4, eigendastefna

Málsnúmer 2608011Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga starfshóps um eigendastefnu Nesvegar 4, dags. 16. nóvember 2026, ásamt fundargerðum hópsins. Jafnframt lögð fram staðfesting lögfræðings bæjarins á því að ekki séu lögfræðilegir annmarkar á stefnunni.

Bæjarráð tekur undir niðurstöðu starfshópsins og samþykkir að áfram verði unnið í samræmi við tillöguna. Eigendastefnunni vísað til bæjarstjórnar til staðfestingar.

Samþykkt samhljóða.

8.Umferðaröryggismál

Málsnúmer 2611024Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað verkefnastjóra skipulags- og umhverfismála um stofnun umferðaröryggishóps Grundarfjarðarbæjar. Umferðaröryggismál hafa komið reglulega til umfjöllunar undanfarin ár og fjölmörg verkefni eru í vinnslu eða undirbúningi. Markmið með stofnun hópsins er að skapa sameiginlegan vettvang til að halda utan um þessi mál, samræma vinnu, forgangsraða verkefnum og fylgja eftir ábendingum um úrbætur.



Lagt til að í hópnum sitji Nanna Vilborg Harðardóttir, verkefnastjóri skipulags- og umhverfismála sem formaður hópsins, Örvar Þór Örlygsson, verkefnastjóri tæknimála og framkvæmda, Hinrik Konráðsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi og Heimir Jónsson, verkstjóri áhaldahúss.



Bæjarráð fagnar framtakinu og samþykkir stofnun umferðaröryggishóps auk fulltrúa í hópinn. Lagt til að hópurinn skili fundargerðum til skipulags- og umhverfisnefndar.

Samþykkt samhljóða.

9.Líkamsræktin - Leigusamningur

Málsnúmer 2609017Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar nýr leigusamningur Grundarfjarðarbæjar við Líkamsræktina.

10.Grundargata 30 leigusamningar

Málsnúmer 2303005Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar leigusamningur vegna Grundargötu 30.

Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 11:32.