-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 256
Nýr stýrihópur um skipulagsverkefnið (Davíð og Heiðrún) hefur hist einu sinni, frá síðasta fundi nefndarinnar, til yfirferðar um tillögugerðina, með skipulagsfulltrúa, bæjarstjóra og skipulagsráðgjöfum.
Rætt um þá valkosti að vinna nýtt deiliskipulag fyrir Ölkeldudalssvæðið, þannig að til verði eitt heildarskipulag fyrir svæðið, eða að vinna breytingu fyrir þann hluta sem er innan Paimpol-garðs með áherslu á nýjar lóðir fyrir íbúðarhúsnæði.
Rætt var um valkostina, sem báðir hafa kosti og galla. Samþykkt að miða við að skipulagslýsingin sé opin hvað þetta varðar.
Farið var yfir fyrirliggjandi drög að skipulagslýsingu fyrir breytingu á deiliskipulagi og tilheyrandi breytingu aðalskipulags.
Skipulags- og umhverfisnefnd felur skipulagsfulltrúa og bæjarstjóra, ásamt fulltrúum í stýrihópi verkefnisins, að ljúka frágangi skipulagslýsingarinnar í samræmi við umræður fundarins.
Nefndin felur jafnframt skipulagsfulltrúa að birta og kynna skipulagslýsinguna. Nefndin stefnir að því að hafa opið hús á kynningartíma skipulagslýsingar, um lýsinguna og hugmyndir um skipulagsbreytingar. Ennfremur að hafa sérstakan fund með áhugasömum verktökum þar sem rýnt er í heppilegar húsgerðir á svæðinu.
Bókun fundar
Lögð fram til afgreiðslu skipulagslýsing vegna breytingar á Aðalskipulagi Grundarfjarðar 2019-2039 og breytingar á deiliskipulagi fyrir Ölkeldudal.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 256
Gerð grein fyrir þeirri vinnu sem átt hefur sér stað við vinnslu tillögunnar.
Nýr stýrihópur um skipulagsverkefnið (Jósef og Pálmi) hefur hist einu sinni, frá síðasta fundi nefndarinnar, til yfirferðar um tillögugerðina, með skipulagsfulltrúa, bæjarstjóra og skipulagsráðgjöfum.
Einnig var unnið með ráðgjöfum Eflu að gatna- og lóðahönnun, hæðarsetningu og hnitsetningu lóða.
Farið var yfir fyrirliggjandi drög að vinnslutillögu fyrir breytingu aðalskipulags vegna svæðisins.
Skipulags- og umhverfisnefnd felur skipulagsfulltrúa ásamt fulltrúum í stýrihópi verkefnisins að ljúka frágangi vinnslutillögunnar, í samræmi við umræður fundarins.
Nefndin felur jafnframt skipulagsfulltrúa að birta og kynna frágengna vinnslutillögu. Nefndin stefnir að því að hafa opið hús á kynningartíma skipulagslýsingar, um lýsinguna og hugmyndir um skipulagsbreytingar.
Bókun fundar
Lögð fram til afgreiðslu skipulagslýsing vegna breytingar á Aðalskipulagi Grundarfjarðar 2019-2039 sem unnin er vegna nýs deiliskipulags sem er í vinnslu fyrir iðnaðarsvæðið vestan Kvernár. Lýsing deiliskipulags verður tekin til afgreiðslu og birtingar á næstunni.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 256
Rætt um framgang verkefnisins, áherslur og sýn í verkefninu.
-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 256
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að úthluta umsækjanda lóðinni við Grundargötu 63 til íbúðarbyggingar, sbr. samþykkt um úthlutun lóða í Grundarfirði og skilmála um afslátt af gatnagerðargjöldum frá 14. desember 2023.
Í 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 segir jafnframt að "Þegar sótt [sé] um byggingar- eða framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmd sem er í samræmi við aðalskipulag en deiliskipulag liggur ekki fyrir getur sveitarstjórn [...] ákveðið að veita megi leyfi án deiliskipulagsgerðar ef framkvæmdin er í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Skal skipulagsnefnd þá láta fara fram grenndarkynningu. Þegar um er að ræða óverulega breytingu á deiliskipulagi skal skipulagsnefnd láta fara fram grenndarkynningu, sbr. 2. og 3. mgr. 43. gr."
Umræða um grenndarkynningu fer fram þegar hugmyndir umsækjanda um húsgerð og fyrirkomulag á lóð hafa borist.
Bókun fundar
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 256
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að veita stöðuleyfi í samræmi við framlagða umsókn, til 1. febrúar 2025.
Nefndin felur skipulagsfulltrúa að gefa út stöðuleyfi að uppfylltum skilyrðum og í samræmi við gildandi gjaldskrá og reglur vegna stöðuleyfa í Grundarfjarðarbæ.
Bókun fundar
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 256
-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 256
-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 256
-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 256
-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 256
-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 256
A) Umræða um jarðvegsnýtingu
Formaður tekur upp umræðu um að mikilvægt sé að geta bent á stað/staði í eða við þéttbýlið, þar sem losa megi uppgröft og jarðvegsefni, t.d. úr húsgrunnum, sem nýta mætti í uppfyllingar og landmótun. Tilgreind voru og rædd ákveðin svæði, eins og skíðasvæði, hafnarsvæði o.fl.
Skipulagsfulltrúa falið að skoða nánar, ræða við hagsmunaaðila á viðkomandi svæðum og undirbúa kynningu á losunarstöðum.
B) Umræða/ákvörðun um úthlutun lóða á miðbæjarreit.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að lóðum á miðbæjarreit (Grundargata 31 og 33, Hamrahlið 6 og 8) verði úthlutað sameiginlega, í einu lagi, til frekari þróunar og uppbyggingar, í samræmi við stefnu Aðalskipulags Grundarfjarðar 2019-2039.
Áréttað verði skýrt í upplýsingum um lausar lóðir og þróunarreiti, að lóðunum verði úthlutað saman í einu lagi.
C) Lausar lóðir.
Lauslega kynntur nýr vefur um lausar lóðir bæjarins sem nú er í vinnslu.
D) Umhverfisfrágangur og umhverfisrölt.
Nefndin ræddi um frágang og umhirðu á lóðum og um þau úrræði sem til eru, til að þrýsta á um betri umgengni og frágang.
Einnig rætt um ástand og fjölda gáma sem staðsettir eru á lóðum hér og þar, oft í slæmu ásigkomulagi, eða í andstöðu við lagaákvæði um nýtingu þeirra.
Samþykkt að taka þetta málefni til umræðu á næsta fundi nefndarinnar og ennfremur að ákveða þá dagsetningar fyrir árlegt umhverfisrölt í vor.
Bókun fundar
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar á efnislið B) varðandi miðbæjarreit.
Forseti setti fund og bauð Heiðrúnu Hallgrímsdóttur og Ásthildi Elvu Kristjánsdóttur velkomnar á sinn fyrsta bæjarstjórnarfund.
Gengið var til dagskrár.