Gjaldskrá Grundarfjarðarhafnar 2027 lögð fram ásamt tillögu að breytingum á tveimur liðum hennar.
Hafnarstjórn fór yfir einstaka liði gjaldskrár Grundarfjarðarhafnar með hliðsjón af fyrirhuguðum launa- og verðlagsbreytingum.
Lagt er til að liðir 54 og 73 verði teknir til sérstakrar breytingar. Gjald vegna útkalls hafnarstarfsmanna í yfirvinnu hækki um 3,6% og festargjald vegna móttöku skipa verði endurskoðað til samræmis. Aðrir liðir gjaldskrár hækki um 2,5%.
Gjaldskrá Grundarfjarðarhafnar samþykkt með þeim breytingum sem lagðar voru fram.
Hafnarstjórn samþykkir að auglýsa tilgreind rými að Nesvegi 4 til útleigu á heimasíðu Grundarfjarðarbæjar, heimasíðu Grundarfjarðarhafnar og samfélagsmiðlum sveitarfélagsins, á markaðskjörum í samræmi við fyrirliggjandi mat löggilts fasteignasala.
Almennt leiguverð fyrir stóra rýmið verði 1.100 kr. á fermetra og er rafmagn ekki innifalið. Leiguverð á básasvæði verði 1.500 kr. á fermetra. Lágmarksleiga miðist við 15 fermetra samtals, að meðtalinni hlutdeild í sameiginlegu rými, og getur sjálft afmarkað básarými því verið minna en 15 fermetrar.
Við úthlutun verði tekið mið af eðli starfseminnar, tengslum hennar við hafnarsvæðið og samkeppnissjónarmiðum.
4.Íslandsstofa - Skráning hafin á Seatrade Cruise Global í Miami í apríl 2027