84. fundur 19. maí 2017 kl. 13:00 - 14:45 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Ragnheiður Dröfn Benidiktsdóttir (RDB)
  • Bjarni Georg Einarsson (BGE)
  • Sigríður Hjálmarsdóttir (SH)
Fundargerð ritaði: Sigríður Hjálmarsdóttir menningar- og markaðsfulltrúi
Dagskrá
Formaður setur fund og gengið er til dagskrár.

1.Hreyfivika UMFÍ 2017

Málsnúmer 1705014Vakta málsnúmer

Menningarfulltrúi fór yfir drög að dagskrá fyrir Hreyfiviku UMFÍ sem verður dagana 29. maí til 4. júní nk. Ýmsar hugmyndir að viðburðum settar fram og ræddar.
Formaður (RDB) fékk leyfi fundarmanna til að færa lið 2 fram fyrir lið 1.

2.Starfsemi UMFG

Málsnúmer 1705015Vakta málsnúmer

Ragnar Smári Guðmundsson, formaður UMFG, sat fundinn undir þessum lið og fór yfir starfsemi ungmennafélagsins.

Gestir

  • Ragnar Smári Guðmundsson - mæting: 13:10

3.Þríhyrningurinn

Málsnúmer 1705016Vakta málsnúmer

Íþrótta- og æskulýðsnefnd fagnar góðum undirtektum bæjarstjórnar við hugleiðingum nefndarinnar um Þríhyrninginn og hvetur bæjarstjórn til að ljúka hugmyndavinnu og hefja framkvæmdir sem allra fyrst. Þarna er illa nýtt svæði sem er kjörið til útivistar fyrir alla fjölskylduna.
Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 14:45.