Ingveldur Eyþórsdóttir hjá Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga kom inn á fundinn á Teams og fór yfir verkefni sem unnið er að á Vesturlandi.
Öldungaráð Grundarfjarðarbæjar mótmælir þeirri mismunun sem íbúar Snæfellsness búa við þegar kemur að dagdvöl aldraðra. Engin slík þjónusta er í boði á svæðinu þótt hún standi eldra fólki til boða nær alls staðar annars staðar á landinu.
Dagdvöl eykur lífsgæði eldra fólks og gerir því kleift að búa lengur á sínu heimili í stað þess að þurfa fyrr á umfangsmeiri þjónustu að halda.
Þetta óréttlæti verður að leiðrétta. Öldungaráð skorar á ríkið að tryggja dagdvöl á Snæfellsnesi og felur bæjarstjóra að fylgja málinu eftir.
ÁV, GSG og SB kynntu gögn frá fundi með Landsambandi eldri borgara þar sem farið var yfir afslætti af fasteignagjöldum til eldri borgara í Hafnarfirði og Grundarfirði. Gögnin sýna fram á verulegan mun á þeim kjörum sem sveitarfélögin bjóða eldri borgurum. Öldungaráð leggur til að málið verði tekið til umfjöllunar í bæjarráði. Tillagan var samþykkt samhljóða.
ÁV, GSG og SB voru með fyrirspurn vegna aðstöðu eldri borgara í Sögumiðstöðinni.
BJJ sagði að þetta væri í vinnslu innan Grundarfjarðarbæjar og von væri á tillögum fljótlega.
Lagt til að næsti fundur öldungaráðs verði 18.janúar kl.15:00 í ráðhúsi Grundarfjarðarbæjar. Þá verði farið í vettvangsferð á dvalarheimilið Fellaskjól og Sögumiðstöðina. Lagt til að næsti fundur eftir það verði 19.apríl á sama tíma. Samþykkt samhljóða.
Lokið við fundargerð að loknum fundi og rafræns samþykkis aflað hjá fundarmönnum.