212. fundur 19. febrúar 2020 kl. 16:15 - 19:15 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Unnur Þóra Sigurðardóttir (UÞS) formaður
  • Vignir Smári Maríasson (VSM)
  • Bjarni Sigurbjörnsson (BS)
  • Helena María Jónsdóttir (HMJ)
  • Hinrik Konráðsson (HK) bæjarfulltrúi
Starfsmenn
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
  • Þuríður Gía Jóhannesdóttir (ÞGJ) aðstoðarmaður skipulags- og byggingarfulltrúa
Fundargerð ritaði: Þuríður Gía Jóhannesdóttir starfsmaður embættis skipulags- og byggingarfulltrúa
Dagskrá
Formaður setti fund. Gengið var til dagskrár.

1.Athugasemdir við Aðalskipulagstillögu des-jan. 2020

Málsnúmer 2002016Vakta málsnúmer

Tillaga að Aðalskipulagi Grundarfjarðar 2019-2039, ásamt umhverfisskýrslu, var auglýst samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 7. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006, þann 4. desember 2019. Athugasemdafrestur rann út þann 22. janúar 2020. Sex athugasemdir bárust og lágu þær fyrir fundinum, auk yfirlits yfir efni athugasemdanna og draga að afgreiðslu þeirra.
Eftirfarandi aðilar gerðu athugasemdir við framlagða aðalskipulagstillögu og/eða umhverfisskýrslu:

1.Ásta B. Pétursdóttir og Nicolai Jónasson, f.h. Berserkseyrar Ytri, dags. jan. 2020

2.Gaukur Garðarsson f.h. jarðareigenda Mýrarhúsa, dags. 21.1.2020

3.Heiðar Þór Bjarnason f.h. Hesteigendafélags Grundarfjarðar, dags. 22.1.2020

4.Hugrún Elísdóttir og Katrín Elísdóttir, Grundargötu 6, dags 22.1.2020

5.Ólafur Tryggvason f.h. reiðveganefndar Hestamannafélagsins Snæfellings, dags. 9.1.2020.

6.Unnsteinn Guðmundsson, dags. 20.1.2020

Í samræmi við 1. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 1. mgr. 9. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006 fór skipulags- og umhverfisnefnd yfir framkomnar athugasemdir og drög að afgreiðslu þeirra og ræddi m.t.t. mögulegra breytinga á aðalskipulagstillögunni eða annarrar meðferðar.

Björg Ágústsdóttir vék af fundi undir umræðum um athugasemdir sem lutu að reiðvegum.

Á næsta fundi nefndarinnar verður gengið frá afgreiðslu athugasemda. Stefnt er að endanlegri afgreiðslu tillögunnar til samþykktar hjá bæjarstjórn fyrri hluta mars 2020.

2.Aðalskipulag Grundarfjarðar 2019 - 2039

Málsnúmer 1805034Vakta málsnúmer

Fyrir fundinum lá aðalskipulagstillagan, ásamt umhverfisskýrslu og öðrum gögnum, eins og þau voru kynnt á auglýsingartíma tillögunnar, frá 4. desember 2019 til 22. janúar 2020. Auk þess gögn vegna samskipta við Skipulagsstofnun fyrir kynningartímann.
Farið yfir tillöguna og fylgigögn og ritaðir minnispunktar um það sem nefndin óskar eftir að verði lagfært í endanlegri útgáfu tillögunnar.
Að öðru leyti er vísað í lið 1 á fundinum.

Fundargerð lesin og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 19:15.