Á þjóðhátíðardaginn 17.júní næstkomandi verður frumsýnd stutt heimildarmynd um tilurð Grundarfjarðarbæjar sem ber titilinn "Þorp verður til". Myndin er framleidd alfarið af heimafólki í samstarfi við Bæringsstofu og er um 20 mínútur að lengd. Sýningin fer fram kl.16.30 í Grundarfjarðarkirkju og er opin öllum. Tekið verður við frjálsum framlögum með millifærslu eða pening. Allur ágóði rennur til viðhalds á Grundarfjarðarkirkju. Framleiðsla myndarinnar var styrkt af Sóknaráætlun Vesturlands, Eyrbyggja Hollvinasamtök Grundarfjarðar og Grundarfjarðarbæ.