Íþróttavika Evrópu verður haldin í Grundarfirði dagana 23.-30. september. Dagskráin í ár er fjölbreytt og skemmtileg þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Frítt verður í sund og golf alla dagana ásamt því að frítt verður í opna tíma hjá Box7 og Heilsueflingu 60+.

Íþróttavikan er haldin í yfir 40 Evrópulöndum og er markmiðið að kynna íþróttir og almenna hreyfingu og sporna gegn auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Íþróttavikan er ætluð öllum, óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. 

Íbúar eru hvattir til þess að nýta þetta tækifæri til þess að prófa nýja hluti, stunda útivist og hreyfa sig.