"Komdu í bingó vinan" er viðburður sem var haldinn í fyrsta skipti í nóvember 2023 svo aftur í október 2024 fyrir konur á Snæfellsnesi! 

Það voru rútuferðir milli bæjarfélaga, um 200 konur mættu, skemmtu sér, spiluðu bingó og styrktu gott málefni! Til sölu voru bæði bingóspjöld og happdrættismiðar og ALLUR ágóði af sölu þeirra rann óskertur til Krabbameinsfélags Snæfellsness! 

Ákveðið hefur verið að halda bingó aftur á þessu ári til styrktar Krabbameinsfélagi Snæfellsness og stefnan er tekin á laugardaginn 10. október í Samkomuhúsi Grundarfjarðar.
Upplýsingar á Facebook undir “Komdu í bingó vinan”!