Söguheimar er staður fyrir alla sem vilja koma saman, spila og njóta kvöldsins. Við spilum aðalega ævintýralegt borðspil sem líkist D&D og flestir þekkja. en það er sérhannað af Rannveigu sem sér um kvöldin. Einnig er hægt að spila önnur spil ef hópurinn hefur áhuga.

Það kostar ekkert að taka þátt og eru allri velkomnir. Fyrir þá sem vilja byrja af krafti er hægt að kaupa byrjunarpakka með tengingum og ýmsu sem fylgir á mun lægra verði en venjulega. 

Markmið klúbbsins er að skapa rými þar sem fólk getur hist, tengst og notið félagsveru. Það er leyfilegt að koma með snarl og drykki með sér á meðan við förum saman í gegnum ævintýrið!

Við minnum á að best er að skrá sig í klúbbinn svo hægt sé að fylgjast með fjölda og skipulagi. Endilega skráið ykkur, það hjálpar okkur að halda kvöldunum skýrum, skipulögðum og skemmtilegum fyrir alla. 

Staðsetning: Sögumiðstöðin

Kvöldinu verður skipt upp í tvennt:
12-17 ára frá kl. 19:30-21:00
18 ára og eldri frá kl. 21:00-23:00