Stóri plokkdagurinn fer fram sunnudaginn 26. apríl og verður skipulögð dagskrá í Þríhyrning

 

Vorið er komið og við erum byrjuð að gera fínt hjá okkur!

Það er tilvalið að nýta góða veðrið og taka þátt í STÓRA PLOKKDEGINUM, hreinsa plast og annað rusl sem safnast hefur á víðavangi eftir veturinn.

Í ár verður skipulögð dagskrá:

  • Klukkan 11 hittast allir í Þríhyrning.
  • Fólki skilgreinir hvar það vill plokka eða verður vísað á svæði.
  • Allir fá ruslapoka og hanska og búið verður að koma fyrir ruslasöfnunarsvæði víðsvegar um bæinn þar sem hægt er að skila af sér rusli.
  • Plokkað verður í tvo klukkutíma
  • Klukkan 13 hittast allir aftur í Þríhyrning þar sem boðið verður upp á léttar veitingar í boði Kvennfélagsins Gleym-mér-ei.
  • Veraldarvinir verða á svæðinu með fræðslu (www.wf.is)

 

Gleðjumst yfir góðu dagsverki og njótum þess að vera saman í hreinna umhverfi og fallegri bæ!