Barnaheill og Geðhjálp taka höndum saman og ferðast um landið í haust. Þar verður fundað með 10. bekk um líðan og veruleika ungmenna á hverjum stað. Lögð verður áhersla á samskipti, tengsl og líðan. Fundurinn fer fram á skólatíma og tekur um 2,5 klst. og lýkur með því að nemendum er boðið í pizzaveislu Lögð verður áhersla á samskipti, tengsl og líðan. Fundurinn fer fram á skólatíma og tekur um 2,5 klst. og lýkur með því að nemendum er boðið í pizzaveislu.  

Sama kvöld verður haldinn fundur þar sem niðurstöðurnar verðar kynntar fyrir forráðamönnum og öðrum áhugasömum. Þangað bjóðum við nemendum, forráðamönnum, sveitarstjórnarfólki, starfsfólki félags- og velferðarmála, presta auk lögreglu. Á þeim fundi verða umræður um efnið og í lokin örtónleikar með Unnsteini Manuel.  

Má segja að fyrirkomulagið sé blanda af ungmennaþingum Barnaheilla og Geðlest Geðhjálpar en bæði verkefnin hafa verið á ferðinni um landið síðastliðin misseri.  

 

Kvöldfundur (19:30 til 21:00)  

Um kvöldið er boðið til samtals í Samkomuhúsi Grundarfjarðar þar sem nemendur og/eða hópstjórar kynna ungmenni ásamt hópstjóra það helsta sem kom fram í hópavinnunni. Þar verða einnig umræður í lokin með áherslu á jákvæð skilaboð sem hægt er að byggja á í áframhaldandi vinnu innan hvers samfélags og á hverju heimili. Í anda Geðlestarinnar endar dagskráin á stuttum tónleikum með Unnsteini Manuel. Á þennan fund eru öll velkomin en þó er ekki æskilegt að börn yngri en 12 ára mæti. Áhersla lögð á að sveitarstjórnarfólk, starfsfólk velferðarmála svæðisins og lögregla mæti auk forsjáraðila.  

Dagskrá 

19:30  Geðhjálp/Barnaheill opna fundinn og fara yfir dagskrána 

19:40  Hópstórar og/eða nemendur kynna niðurstöður hvers hóps  

20:00  Samtal um niðurstöður 

20:20  Jákvæð skilaboð fundarins – hvað er hægt að gera?  

20:45  Unnsteinn Manuel 

21:00  Fundi lýkur