Málsnúmer 1703044

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 497. fundur - 05.04.2017

Lagður fram ársreikningur Grundarfjarðarbæjar fyrir árið 2016.
Bæjarráð samþykkir ársreikninginn með áritun sinni og telst hann tilbúinn til endurskoðunar og afgreiðslu í bæjarstjórn.

Samþykkt samhljóða.

Bæjarstjórn - 204. fundur - 05.04.2017

Jónas Gestur Jónasson, endurskoðandi og Kristinn Kristófersson fóru yfir helstu tölur í ársreikningi 2016 við fyrri umræðu í bæjarstjórn.

Allir tóku til máls.

Rekstrartekjur samstæðunnar voru 965,0 millj. kr., þar af voru 828,6 millj. kr. vegna A-hluta.

Rekstrarniðurstaða samkvæmt samanteknum ársreikningi A og B hluta var jákvæð upp á 36,8 millj. kr. en rekstarafkoma A hluta var jákvæð um 20,6 millj. kr. Rekstrarniðurstaða er talsvert betri en áætlun gerði ráð fyrir.

Framlegðarhlutfall rekstrar af samanteknum ársreikningi var 14,80% en 11,78% af A hluta.

Heildarskuldir og skuldbindingar sveitarfélagsins voru 1.399,7 millj. kr. og skuldaviðmið 140,47% en var 149,11% árið áður.

Eigið fé sveitarfélagsins samkvæmt samanteknum ársreikningi er 596,5 millj. kr. í árslok 2016 og eiginfjárhlutfall er 31,3% en var 30,46% árið áður.

Veltufé frá rekstri í samanteknum ársreikningi var 114,6 millj. kr. og handbært fé í árslok 94,4 millj. kr. en var 111,4 millj. kr. árið áður.

Samþykkt samhljóða að vísa ársreikningi Grundarfjarðarbæjar árið 2016 til síðari umræðu.

Bæjarstjórn - 205. fundur - 04.05.2017

Kristinn Kristófersson og Jónas Gestur Jónasson sátu fundinn undir þessum lið og kynntu ársreikning ársins 2016, endurskoðunarskýrslu og samanburð á ársreikningum sveitarfélaga á Snæfellsnesi fyrir árið 2016.

Allir tóku til máls.

Ársreikningur Grundarfjarðarbæjar fyrir árið 2016 samþykktur samhljóða og undirritaður.