Málsnúmer 1704006

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn - 205. fundur - 04.05.2017

Lagt fram erindi Sýslumannsins á Vesturlandi, dags. 15. mars sl., þar sem óskað er umsagnar Grundarfjarðarbæjar á umsókn Eyrarsveitar ehf. um leyfi til að reka gististað í flokki II að Sæbóli 46, Grundarfirði.

Grundarfjarðarbær getur ekki veitt jákvæða umsögn um erindið að svo stöddu, þar sem umbeðin gögn hafa ekki borist.

Bæjarráð - 504. fundur - 03.10.2017

Tekið fyrir að nýju erindi Sýslumannsins á Vesturlandi frá 15. mars sl. þar sem óskað er umsagnar Grundarfjarðarbæjar á umsókn Eyrarsveitar ehf. til að reka gististað í flokki II að Sæbóli 46.
Ekki var unnt að afgreiða erindið fyrr vegna skorts á gögnum.

Fyrirliggjandi eru jákvæðar umsagnir annarra umsagnaraðila. Grundarfjarðarbær sér því ekkert því til fyrirstöðu að umbeðið rekstrarleyfi verði veitt.

Samþykkt samhjóða.