Málsnúmer 1709001F

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn - 208. fundur - 01.11.2017

Ágústa Ósk Guðnadóttir hefur sagt sig úr menningarnefnd vegna flutninga úr sveitarfélaginu.

Lagt til að í hennar stað komi Unnur Birna Þórhallsdóttir.

Samþykkt samhljóða.
  • .1 1709028 Kosning formanns
    Menningarnefnd - 11 Bjarni Sigurbjörnsson býður sig fram til formanns og er það samþykkt samhljóða.
    Hrafnhildur Jóna Jónasdóttir býður sig fram til varaformanns og er það samþykkt samhljóða.
  • .2 1709026 Rökkurdagar 2017
    Menningarnefnd - 11 Lagt til að Rökkurdagar verði haldnir síðustu vikuna í október. Hugmyndir að dagskrárliðum hátíðarinnar ræddar.
  • Menningarnefnd - 11 Áhugavert og þarft verkefni að auka vægi matarauðs í héraði. Menningar- og markaðsfulltrúa falið að afla frekari upplýsinga um átaksverkefnið Matarauður Vesturlands.
  • Menningarnefnd - 11 Menningar- og markaðsfulltrúi upplýsir fundarmenn um stöðu mála varðandi undirbúning að uppsetningu skilta um bæinn. Mun þeim verða skipt í þemu og unnin í áföngum. Áætlað er að fyrstu fimm skiltin verði komin á sinn stað um miðjan maí árið 2018.
  • Menningarnefnd - 11 Myndir, filmur, videoefni og fleira frá Bæring Cecilssyni, sem er í varðveislu Grundarfjarðarbæjar, er geymt í lítilli skrifstofukompu í Sögumiðstöðinni. Þar er nánast ómögulegt að komast að efninu auk þess sem það fer ekki vel um það.
    Lagt er til að efnið verði fært út úr Sögumiðstöðinni sem fyrst og varðveitt að Grundargötu 30, eða annars staðar þar sem betur fer um það og það er aðgengilegt á öllum tímum.
    Bókun fundar Til máls tóku EG, HK, ÞS og RG.

    Bæjarstjórn tekur undir með nefndinni að myndefninu verði fundinn betri staður.
  • .6 1709032 Brana SH
    Menningarnefnd - 11 Ræddar hugmyndir um yfirbyggingu yfir bátinn Brönu SH. Ekkert hefur gerst í þeim málum að undanförnu og því lagt til að fengið verði álit óháðs fagaðila um hvernig Sögumiðstöðin sé best nýtt með fyrrnefnda yfirbyggingu í huga.



    Bókun fundar Til máls tóku EG, HK, RG og ÞS.

    Bæjarstjórn tekur undir með nefndinni og leggur til að málið verði skoðað með fulltrúum Brönusjóðs.

    Samþykkt samhljóða.
  • Menningarnefnd - 11 Farið yfir stöðu mála varðandi umgengni í Sögumiðstöð og Samkomuhúsi. Nefndin er sammála um að bæta megi umgengni um menningarhúsin t.d. herbergið á efri hæð Samkomuhúss.

    Menningarnefnd hvetur bæjarstjórn til að taka sem fyrst ákvörðun um framtíð Samkomuhússins. Húsið er menningararfur samfélagsins, reist af sjálfboðaliðum í sveitinni, og telur menningarnefnd það skyldu bæjarins að viðhalda því og betrumbæta svo það megi halda áfram hlutverki sínu sem samkomuhús okkar allra.
    Bókun fundar Til máls tóku EG, ÞS, RG og JÓK.

    Bæjarstjórn tekur undir með nefndinni. Hafist hefur verið handa við undirbúning á lagfæringum í Samkomuhúsi.

    Jafnframt kallar bæjarstjórn eftir stefnumótun menningarnefndar um framtíð og hlutverk menningarhúsa bæjarins.