Málsnúmer 1801005F

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn - 211. fundur - 08.02.2018

  • Árni Þór Hilmarsson sækir um lóðina Fellasneið 8 Skipulags- og umhverfisnefnd - 185 Skipulags- og umhverfisvernd samþykkir erindið og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að veita Árna Þór Hilmarssyni lóðina að Fellasneið 8.

    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Sæmundur Runólfsson sækir um lóðina Grundargötu 12 Skipulags- og umhverfisnefnd - 185 Skipulags- og umhverfisvernd samþykkir erindið og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að veita Sæmundi Runólfssyni lóðirnar að Grundargötu 12 og 14.

    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Garðar Hafsteinsson sækir um lóðina að Fellasneið 3. Skipulags- og umhverfisnefnd - 185 Skipulags- og umhverfisvernd samþykkir erindið og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að veita Garðari Hafsteinssyni lóðina að Fellasneið 3.


    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Sótt er um leyfir til að setja gönguhurð að Ártúni 2 Skipulags- og umhverfisnefnd - 185 Skipulags- og umhverfisvernd tekur vel í erindið og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að veita framkvæmdarleyfi.
    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Þorgrímur sækir um fyrir hönd Lavaland að byggja soghús við Nesveg 21. Skipulags- og umhverfisnefnd - 185 Skipulags- og umhverfisvernd tekur vel í erindið og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að veita framkvæmdarleyfi.

    Ólafur Tryggvason vék af fundi undir þessum lið.

    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Sótt er um byggingarleyfi vegna byggingar á Sólvallareit ásamt stöðuleyfi fyrir gáma. Skipulags- og umhverfisnefnd - 185 Skipulags- og umhverfisvernd samþykkir erindið og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfir ásamt því að veita stöðuleyfi.

    Bókun fundar RG vék af fundi undir þessum lið.

    Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.

    RG tók aftur sæti sitt á fundinum.
  • Aðal- og deiliskipulag Berserkseyrar. Skipulags- og umhverfisnefnd - 185 Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir breytt Aðalskipulag Berserkseyrar og deiliskipulag vegna frístundarbyggðar að Berserkseyri.

    Skipulags-og umhverfisnefnd telur að þegar komi til framkvæmda á deiliskipulagssvæðinu að þá þurfi færa vatnslögnina út fyrir byggingareitinn á Berserkseyri ytri og sé það gert á kostnað eigenda Berserkseyrar sem staðið hafi í framkvæmd þessari.

    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Lagðar fram teikningar ásamt umsögnum íbúa vegna gangstétta við austanverða Grundargötu.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 185 Skipulags- og umhverfisvernd frestar erindinu og leggur til að farið verði í þá vinnu að útfæra hvernig best sé að breikka gangstéttar við austanverða Grundargötu án þess að mikil skerðing verði á bílastæðum.