185. fundur 01. febrúar 2018 kl. 16:00 - 17:50 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Ólafur Tryggvason (ÓT) formaður
  • Vignir Smári Maríasson (VSM)
  • Helena María Jónsdóttir (HMJ)
  • Unnur Þóra Sigurðardóttir (UÞS)
  • Runólfur J. Kristjánsson (RJK)
  • Þorsteinn Birgisson (ÞB) skipulags- og byggingafulltrúi
Fundargerð ritaði: Þorsteinn Birgisson skipulags- og byggingafulltrúi
Dagskrá

1.Fellasneið 8, lóðaumsókn

Málsnúmer 1801049Vakta málsnúmer

Árni Þór Hilmarsson sækir um lóðina Fellasneið 8
Skipulags- og umhverfisvernd samþykkir erindið og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að veita Árna Þór Hilmarssyni lóðina að Fellasneið 8.

2.Grundargata 12 og 14, lóðaumsókn.

Málsnúmer 1712013Vakta málsnúmer

Sæmundur Runólfsson sækir um lóðina Grundargötu 12
Skipulags- og umhverfisvernd samþykkir erindið og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að veita Sæmundi Runólfssyni lóðirnar að Grundargötu 12 og 14.

3.Fellasneið 3, lóðaumsókn

Málsnúmer 1801050Vakta málsnúmer

Garðar Hafsteinsson sækir um lóðina að Fellasneið 3.
Skipulags- og umhverfisvernd samþykkir erindið og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að veita Garðari Hafsteinssyni lóðina að Fellasneið 3.


4.Ártún 2 - gönguhurð breyting

Málsnúmer 1801053Vakta málsnúmer

Sótt er um leyfir til að setja gönguhurð að Ártúni 2
Skipulags- og umhverfisvernd tekur vel í erindið og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að veita framkvæmdarleyfi.

5.Nesvegur 21, Byggja soghús.

Málsnúmer 1801054Vakta málsnúmer

Þorgrímur sækir um fyrir hönd Lavaland að byggja soghús við Nesveg 21.
Skipulags- og umhverfisvernd tekur vel í erindið og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að veita framkvæmdarleyfi.

Ólafur Tryggvason vék af fundi undir þessum lið.

6.Nýtt deiliskipulag Sólvallareits

Málsnúmer 1710052Vakta málsnúmer

Sótt er um byggingarleyfi vegna byggingar á Sólvallareit ásamt stöðuleyfi fyrir gáma.
Skipulags- og umhverfisvernd samþykkir erindið og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfir ásamt því að veita stöðuleyfi.

7.Berserkseyri, lýsing á aðalskipulagi

Málsnúmer 1704007Vakta málsnúmer

Aðal- og deiliskipulag Berserkseyrar.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir breytt Aðalskipulag Berserkseyrar og deiliskipulag vegna frístundarbyggðar að Berserkseyri.

Skipulags-og umhverfisnefnd telur að þegar komi til framkvæmda á deiliskipulagssvæðinu að þá þurfi færa vatnslögnina út fyrir byggingareitinn á Berserkseyri ytri og sé það gert á kostnað eigenda Berserkseyrar sem staðið hafi í framkvæmd þessari.

8.Grundargata, framkvæmdir

Málsnúmer 1709016Vakta málsnúmer

Lagðar fram teikningar ásamt umsögnum íbúa vegna gangstétta við austanverða Grundargötu.
Skipulags- og umhverfisvernd frestar erindinu og leggur til að farið verði í þá vinnu að útfæra hvernig best sé að breikka gangstéttar við austanverða Grundargötu án þess að mikil skerðing verði á bílastæðum.

Fundi slitið - kl. 17:50.