Málsnúmer 1905001F

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn - 229. fundur - 13.06.2019

  • .1 1901021 Lausafjárstaða
    Bæjarráð - 531 Lagt fram yfirlit yfir lausafjárstöðu.
  • Bæjarráð - 531 Lagt fram yfirlit yfir greidda staðgreiðslu jan.-apríl 2019. Skv. yfirlitinu hefur greidd staðgreiðsla hækkað um 3,4% miðað við sama tíma í fyrra.

    Fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir talsvert meiri hækkun útsvars en þessar tölur gefa til kynna, í samræmi við forsendur útgefnar af Sambandi ísl. sveitarfélaga.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra og skrifstofustjóra að rýna betur í þessa þróun og afla gagna sem skýrt geta þessar breytingar.

    Samþykkt samhljóða.
  • Bæjarráð - 531 Lagt fram tíu ára fjárhagsyfirlit með upplýsingum úr ársreikningi og lykiltölum áranna 2009-2018.

    Umræður um stöðu og þróun tekna og gjalda.
  • .4 1902049 Framkvæmdir 2019
    Bæjarráð - 531 Umræður um stöðu verklegra framkvæmda.

    Kirkjufellsfoss, bílastæði - framkvæmd. Bæjarstjóri fór yfir stöðu verksins. Aðstoðarmaður skipulags- og byggingafulltrúa hefur hætt störfum. Skipaður verður annar eftirlitsmaður með verkinu.

    Rætt um framkvæmd við yfirlögn á nýju götunni milli Sólvalla og Nesvegar, og framkvæmd útboðs á því verki.

    Farið yfir framkvæmdaverkefni tengd fasteignum. Vísað er til bókunar bæjarráðs á fundi sínum í febrúar þar sem fyrirhugað var að fara í stærri útboð verkefna. Vegna stöðu starfsmannamála bæjarins hefur utanumhald um framkvæmdir ársins verið endurskoðað og unnið að breyttri forgangsröðun og fyrirkomulagi verkefna í sumar og haust.

    Rætt að öðru leyti um starfsmannamál og mönnun verkefna sumarsins.

    Bæjarstjóri sagði frá viðræðum milli fulltrúa sveitarfélaganna á Snæfellsnesi um aukna samvinnu í skipulags- og byggingamálum á Snæfellsnesi, sbr. bókun Byggðasamlags Snæfellinga á aðalfundi þann 8. apríl sl.
    Bókun fundar BGE spurði um framvindu í vinnu við bílastæði við Kirkjufellsfoss. Bæjarstjóri sagði frá framvindu verksins, en verkfræðingur frá Verkís hefur verið ráðinn eftirlitsmaður með verkinu.

  • Bæjarráð - 531 Lögð fram og rædd endurbætt tillaga Capacent um heildarstefnumótun fyrir Grundarfjarðarbæ ásamt verðtilboði. Skv. tillögunni er lagt til að mótaður verði stýrihópur með kjörnum fulltrúum, undir forystu bæjarstjóra, alls fimm manns.

    Bæjarráð samþykkir samhljóða fyrirliggjandi verðtilboð og að stofnaður verður stýrihópur um heildarstefnumótun sveitarfélagsins, með fjórum kjörnum fulltrúum og bæjarstjóra.
    Bókun fundar Forseti lagði til að bæjarstjórn myndi fyrir 20. júní nk. skila tilnefningu fulltrúa í stýrihóp um stefnumótun skv. tillögu Capacent og umræðum í bæjarráði.

    Samþykkt samhljóða.



  • Bæjarráð - 531 Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að skipaður verði starfshópur sem hafi það hlutverk að fjalla um leikskólalóð. Starfshópurinn mun halda áfram og ljúka því samtali sem hófst sl. haust þegar bæjarráð heimsótti leikskólann og ræddi við leikskólastjóra um fyrirkomulag á lóð. Hópurinn mun fara yfir hönnun sem þegar hefur verið unnin fyrir leikskólalóð og skoða hvort gera þurfi breytingar á henni. Sett verði fram raunhæf áætlun um framkvæmdir næstu ára.

    Lagt til að starfshópurinn sé skipaður leikskólastjóra, formanni eða fulltrúa úr skólanefnd, formanni skipulags- og umhverfisnefndar, fulltrúa úr bæjarráði og fulltrúa foreldra. Umsjónarmaður fasteigna yrði kallaður að vinnu hópsins eftir atvikum.

    Samþykkt samhljóða.
    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir tillögu bæjarráðs um skipan starfshóps skv. tillögunni. Starfshópurinn hefur þegar komið saman og hafið undirbúning.

  • Bæjarráð - 531 Lagt fram erindi frá RARIK dags. 30. apríl sl., með ósk um yfirtöku bæjarins á götulýsingarkerfi RARIK í þéttbýli.

    Lagt til að frestað verði að taka afstöðu til erindisins þar sem málið er til skoðunar á vettvangi sveitarfélaga.

    Samþykkt samhljóða.
  • Bæjarráð - 531 Lagt fram erindi frá Soffaníasi Cecilssyni hf. varðandi það hvort Grundarfjarðarbær muni nýta sér forkaupsrétt á vélbátnum Grundfirðingi SH-24, skipaskráningarnúmer 1202, í samræmi við lög um forkaupsrétt, vegna kauptilboðs, sem borist hefur í bátinn. Fyrir liggur að enginn kvóti er á bátnum.

    Bæjarráð samþykkir samhljóða að nýta ekki forkaupsrétt Grundarfjarðarbæjar á Grundfirðingi SH-24.
  • Bæjarráð - 531 Lagt fram til kynningar erindi Samvinnuhúsa vegna ljósmyndasýninga sem fyrirhugaðar eru í samstarfi við söfn á Vesturlandi. Um er að ræða ljósmyndir af eldri húsum sem teknar hafa verið um allt Vesturland.

    Í erindinu felst einnig ósk um fjárstyrk. Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.

    Samþykkt samhljóða.
  • Bæjarráð - 531 Lögð fram til kynningar fundargerð 181. fundar félagsmálanefndar Snæfellinga sem haldinn var 2. apríl sl.
  • Bæjarráð - 531 Lögð fram til kynningar fundargerð 182. fundar félagsmálanefndar Snæfellinga sem haldinn var 7. maí sl.

  • Bæjarráð - 531 Lagður fram til kynningar ársreikningur Golfklúbbsins Vestarrs vegna ársins 2018.
  • Bæjarráð - 531 Lagður fram til kynningar ársreikningur Björgunarsveitarinnar Klakks vegna ársins 2018.
  • Bæjarráð - 531 Lagður fram til kynningar ársreikningur UMFG vegna ársins 2018.
  • Bæjarráð - 531 Lagt fram til kynningar ársuppgjör Sjómannadagsráðs Grundarfjarðar vegna ársins 2018.

  • Bæjarráð - 531 Lagt fram til kynningar ársuppgjör Skíðadeildar UMFG vegna ársins 2018.
    Bókun fundar Til máls tóku GS, UÞS, SÞ og BÁ.

    Með vísan í ársreikninga og ársuppgjör þeirra íþróttafélaga sem hér birtast í fundargerðinni, fór fram umræða um tryggingamál íþróttafélaga. Bæjarstjórn beinir því til HSH hvort sambandið geti á sínum vettvangi beitt sér fyrir vinnu meðal íþróttafélaga þar sem tryggingamál íþróttafélaga verði tekin til skoðunar, og einnig hvort ná megi aukinni hagkvæmni í sameiginlegu útboði trygginga.

  • Bæjarráð - 531 Lagður fram til kynningar þjónustusamningur við Símann hf., en í viðauka samningsins hefur verið bætt við fyrirhugaðri þjónustu í tengslum við ljósleiðara í Ráðhús, grunnskóla og höfn.
  • Bæjarráð - 531 Lagður fram til kynningar samningur við Framkvæmdasjóð ferðamannastaða varðandi styrk að fjárhæð 3.954.000 kr. vegna öryggismála og merkinga í samvinnu við eigendur jarðanna Kirkjufells og Háls.

  • Bæjarráð - 531 Lögð fram til kynningar tilkynning Lánasjóðs sveitarfélaga (LS) um að breytilegir vextir v/útlána sjóðsins séu 2,4% frá 1. maí 2019, en voru 2,55%.
  • .20 1905032 HSH - Þakkarbréf
    Bæjarráð - 531 Lagt fram til kynningar þakkarbréf HSH dags. 20. maí sl.