Málsnúmer 1911025

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn - 232. fundur - 28.11.2019



Lögð fram beiðni Sýslumannsins á Vesturlandi um umsögn vegna umsóknar Ferðaþjónustunnar í Suður-Bár um leyfi til að reka gististað í flokki II.

Máli frestað til fundar bæjarstjórnar í desember, þegar fyrir munu liggja umsagnir embætta bæjarins.

Samþykkt samhljóða.

Bæjarstjórn - 234. fundur - 16.01.2020

Lögð fram beiðni Sýslumannsins á Vesturlandi, þar sem óskað er umsagnar á umsókn Ferðaþjónustunnar í Suður-Bár um restrarleyfi í flokki II.

Til máls tóku JÓK og BÁ.

Bæjarstjórn gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi sé veitt, enda liggi fyrir jákvæðar umsagnir annarra umsagnaraðila.

Samþykkt samhljóða.