Málsnúmer 2005015

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 546. fundur - 14.05.2020

Lagður fram ársreikningur Grundarfjarðarbæjar fyrir árið 2019.

Bæjarráð samþykkir ársreikninginn með áritun sinni og telst hann tilbúinn til endurskoðunar og afgreiðslu í bæjarstjórn.

Samþykkt samhljóða.

Bæjarstjórn - 238. fundur - 14.05.2020

Jónas Gestur Jónasson, lögg. endurskoðandi og Marinó Mortensen, frá Deloitte, sátu fundinn gegnum fjarfundarbúnað undir þessum lið. Þeir fóru yfir helstu tölur í ársreikningi 2019 við fyrri umræðu í bæjarstjórn.

Allir tóku til máls.

Rekstrartekjur samstæðunnar námu 1.170 millj. kr., en áætlun gerði ráð fyrir 1.200 millj. kr., Rekstrartekjur vegna A-hluta námu 996 millj. kr. en áætlun gerði ráð fyrir 1.030 millj. kr.

Rekstrarniðurstaða samkvæmt samanteknum ársreikningi A og B hluta var jákvæð um 83,3 millj. kr., en rekstarafkoma A hluta var jákvæð um 24,8 millj. kr. Fjárhagsáætlun með viðauka gerði ráð fyrir 64,2 millj. kr. jákvæðri niðurstöðu. Rekstrarafkoma ársins er 19,1 millj. kr betri en áætlun gerði ráð fyrir.

Heildarskuldir og skuldbindingar sveitarfélagsins námu 1.705,5 millj. kr. og skuldaviðmið 113,21% en var 113,13% árið áður.

Eigið fé sveitarfélagsins samkvæmt samanteknum ársreikningi var 933,1 millj. kr. í árslok 2019 og eiginfjárhlutfall var 34,81% en var 31,29% árið áður.

Veltufé frá rekstri í samanteknum ársreikningi var 76,5 millj. kr. og handbært fé í árslok 19,4 millj. kr., en var 107,6 millj. kr. árið áður.

Samþykkt samhljóða að vísa ársreikningi 2019 til síðari umræðu í bæjarstjórn.

Bæjarstjórn - 239. fundur - 11.06.2020

Jónas Gestur Jónasson lögg. endurskoðandi (gegnum Teams) og Marinó Mortensen frá Deloitte sátu fundinn undir þessum lið.

Þeir kynntu ársreikning 2019, sem tekinn er til síðari umræðu, endurskoðunarskýrslu og samanburð á ársreikningum sveitarfélaga á Snæfellsnesi fyrir árið 2019.

Allir tóku til máls.

Ársreikningur Grundarfjarðarbæjar fyrir árið 2019 samþykktur samhljóða.

Gestir

  • Jónas Gestur Jónasson - mæting: 16:30
  • Marinó Mortensen - mæting: 16:30

Hafnarstjórn - 10. fundur - 23.06.2020

Lagður fram ársreikningur Hafnarsjóðs Grundarfjarðarbæjar fyrir árið 2019. Samkvæmt ársreikningnum eru heildartekjur 111,4 millj. kr. og laun og rekstrargjöld eru 55,8 millj. kr. Rekstrarafkoma fyrir fjármagnsliði er því 48,2 millj. kr. Að teknu tilliti til fjármagnsgjalda að fjárhæð 0,6 millj. kr. er rekstrarniðurstaða hafnarsjóðs jákvæð um 47,6 millj. kr., en var jákvæð um 17,2 millj. árið áður. Fjárfest var fyrir 121,3 millj. kr. árið 2019.