Kristín Þorleifsdóttir skipulagsfulltrúi er gestur fundarins undir þessum lið og var í fjarfundi. Var hún boðin velkomin.
Hafnarstjórn - 1Kristín sagði frá vinnu sem í gangi er við endurskoðun deiliskipulags á hafnarsvæði, Framnesi austan Nesvegar. Gera þarf breytingar á gildandi deiliskipulagi og auka við svæðið, m.a. færa Norðurgarð þar undir.
Farið var yfir vinnuna og helstu viðfangsefni hennar, þróun og starfsemi á höfninni. Þann 6. júní sl. var fundur með hagsmunaaðilum á hafnarsvæði og Framnesi, en ennfremur er hafin vinna við gerð deiliskipulags á Framnesi.
Varðandi mörk skipulagssvæðisins þá leggur hafnarstjórn til að þau verði dregin sunnan við hafnarhús og Miðgarð, þannig að deiliskipulagið taki heildstætt á komum skemmtiferðaskipa, umferðarflæði sem þeim fylgir, sem og samspili við umsvif vegna fiskiskipa, bæði við Norðurgarð og Miðgarð.
Nefndin telur mikilvægt að deiliskipulagið taki vel á flæði umferðar á hafnarsvæðinu, þannig að umsvif og þjónusta við fiskiskip og skemmtiferðaskip geti farið saman á farsælan hátt.
Ennfremur telur hafnarstjórn mikilvægt að fylgja áherslum aðalskipulags um að huga vel að nýtingu lóða/lands á hafnarsvæðinu.
Hér vék Kristín af fundi og var henni þakkað fyrir komuna. Bókun fundarBæjarráð samþykkir samhljóða tillögu hafnarstjórnar um að mörk deiliskipulagssvæðisins verði dregin sunnan við hafnarhús og Miðgarð.
Bæjarráð felur skipulagsfulltrúa að fylgja þeirri samþykkt eftir í vinnunni við endurskoðun/breytingu deiliskipulags hafnarsvæðis á Framnesi austan Nesvegar.
Í pósti frá Vegagerðinni kemur fram að frestur hafi verið lengdur til 31. júlí nk. til að skila inn upplýsingum vegna samgönguáætlunar 2023-2027.
Hafnarstjórn - 1Farið yfir framkvæmdir sem höfnin sækir um að komi inn á samgönguáætlun 2023-2027, en Vegagerðin hefur leitað eftir upplýsingum frá höfnum. Fulltrúar í hafnarstjórn höfðu áður samþykkt fyrirliggjandi drög, rafrænt, og sendi hafnarstjóri það til Vegagerðarinnar.
Staðfest af hafnarstjórn. Bókun fundarBæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti óskir hafnarstjórnar um framkvæmdir v. gerð samgönguáætlunar 2023-2027.
Lögð fram til kynningar skýrsla frá Köfunarþjónustunni ehf. vegna skoðunar á stálþili á eldri hluta Norðurgarðs, sem fram fór 20. júní sl. Hafnarstjórn - 1Lögð hefur verið fram ósk um fjármagn til endurbóta á stálþilinu vegna samgönguáætlunar 2023-2027 (sjá næsta lið á undan).
Hafnarstjóri sagði frá komum skemmtiferðaskipa í sumar og nk. sumar.
Lagt fram yfirlit hafnarstjóra um fjölda/komur skemmtiferðaskipa og tekjur á liðnum árum. Hafnarstjórn - 1Rætt var um aðstöðu fyrir gesti skemmtiferðaskipa, en þeim fer verulega fjölgandi. Hafnarstjóri telur þörf á að auka skjól við flotbryggjuna með einum eða öðrum hætti. Einnig var rætt um salernisaðstöðu á svæðinu. Þessi atriði verða rædd nánar í tengslum við deiliskipulagsvinnu þá sem nú er í gangi, sbr. fyrri dagskrárlið.
Einnig lagt fram erindi Áfangastaða- og markaðssviðs SSV en höfnin hyggst fara í vinnu með sviðinu um gæði í móttöku á skemmtiferðaskipum.
Auk þess lögð fram eldri skjöl um sambærilegt verkefni sem sviðið kom að.