Tómas Freyr Kristjánsson sat fundinn undir þessum lið.
Ný útgáfa af kynningarmyndbandi um íþróttir og tómstundir í Grundarfirði varð lögð fram til kynningar og umræðu.
Íþrótta- og tómstundanefnd - 107Farið var yfir myndbandið og líst nefndinni mjög vel á það. Lagðar voru til nokkrar breytingar. Stefnt er að því að myndbandið verði fullunnið fyrir næsta fund nefndarinnar sem fyrirhugaður er 1. mars nk.
Farið var yfir fyrirhugaðar framkvæmdir við íþróttamannvirki á árinu 2023. Íþrótta- og tómstundanefnd - 107Ólafur fór yfir framkvæmdir við íþróttamiðstöð á árinu 2023 og kynnti stöðu þeirra. Nú hefur verið skipt um gólfefni í anddyri og á gangi íþróttahúss, loft hefur verið tekið niður með loftaplötum og ný lýsing er að hluta til komin upp. Búið er að panta nýjar skóhillur og snaga. Von er á málurum mjög fljótlega og skoðað verður með viðbótarefni á veggi. Að mati Ólafs hefur hljóðvist batnað með þessum framkvæmdum.
Gluggar eru komnir í tengigang milli íþróttahúss og grunnskóla, og bíða þeir þess að veður leyfi gluggaskipti. Þak tengigangs var endurnýjað sl. sumar/haust.
Fyrir liggur nú greinargerð hljóðvistarsérfræðings frá Eflu, um hljóðvist í íþróttasal og verður unnið úr henni í framhaldinu.
Íþrótta- og tómstundafulltrúi kynnti drög að þarfagreiningu fyrir sundlaugargarð sem hann hefur unnið. Drögin voru lögð fram til umræðu, en þau voru einnig til kynningar og umræðu í bæjarráði fyrr um daginn.
Kynning á undirbúningsvinnu sem er í gangi, vegna fyrirhugaðra orkuskipta fyrir íþróttamiðstöð og grunnskóla.
Íþrótta- og tómstundanefnd - 107Ólafur íþrótta- og tómstundafulltrúi fór yfir og upplýsti um stöðu mála.
Hann sagði frá undirbúningsvinnu vegna orkuskipta í íþrótta- og skólamannvirkjum, sem nú er í gangi. Skipta þarf úr olíukyndingu og nýta varmadælutækni til húshitunar mannvirkja.
Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri sat fundinn undir þessum lið.
Framlögð voru til kynningar og umræðu drög að samstarfssamningi milli Grundarfjarðarbæjar og Ungmennafélags Grundarfjarðar. Drögin eru í vinnslu.
Íþrótta- og tómstundanefnd - 107Björg fór yfir aðdraganda og þörfina á að gera samning við UMFG. Ætlunin er að byrja á þeim samningi en gera síðan samninga við önnur íþróttafélög í bænum.
Góðar umræður fóru fram. Samningsdrögin eru til áframhaldandi vinnslu.
Ungmennafélag Grundarfjarðar verður 90 ára þann 10. júlí nk. Aðalstjórn stefnir að því að halda veglega afmælishátíð í júlí.Íþrótta- og tómstundanefnd - 107Ólafur íþrótta- og tómstundafulltrúi kynnti hugmyndir aðalstjórnar Ungmennafélagsins um viðburði vegna afmælisins.