Ríkey Konráðsdóttir kom inn á fundinn, en hún hefur umsjón með undirbúningi 17. júní dagskrár í ár. Ungmennaráð - 8Ríkey kynnti drög að dagskrá fyrir 17. júní. Nefndarmönnum leist vel á drögin og komu með hugmynd að unglingaballi til viðbótar við dagskrána til að höfða til ungmenna á Snæfellsnesi.
Ólafi, íþrótta- og tómstundafulltrúa, falið að kanna hvort samkomuhúsið sé laust og ef svo hvort nærliggjandi sveitarfélög hefðu áhuga á að koma að slíku balli.
Ríkey vék af fundi kl. 17:00 og var henni þakkað fyrir góða kynningu og komuna á fundinn.
Ungmennaráð - 8Nefndin ræddi skipulagningu á ungmennakvöldi sem nefndin stefnir á að halda í lok maímánaðar í Sögumiðstöðinni. Ákveðið var að halda Ungmennakvöld miðvikudaginn 24. maí . Góðar umræður fóru fram um undirbúning og skipulag.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fundargerð 8. fundar ungmennaráðs.